Sigríður Björk braut lög með miðlun persónuupplýsinga um Tony Omos

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum og núver­andi lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, braut lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga, þegar hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos og fleiri. Þetta kemur fram í úrskurði Per­sónu­verndar sem Kjarninn hefur undir höndum.

Þá studd­ist beiðni Gísla Freys ekki við við­hlít­andi laga­heim­ildir um miðlun per­sónu­upp­lýs­inga, sam­kvæmt úrskurði Per­sónu­verndar. Þá er Útlend­inga­stofnun gagn­rýnd fyrir að hafa ekki gætt við­un­andi öryggis við miðlun fram­burð­ar­skýrslu Tony Omos til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Í úrskurð­ar­orði segir:

Miðlun Lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum á skýrslu­drögum með per­sónu­upp­lýs­ingum um Tony Omos, Evelyn Glory Joseph og fleiri ein­stak­linga til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013, sem og beiðni ráðu­neyt­is­ins þar að lút­andi, studd­ist ekki við við­hlít­andi heim­ild.

Skortur á skrán­ingu um miðlun drag­anna í mála­skrá lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum, sem og um öflun þeirra í mála­skrá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, fór í bága við kröfum um upp­lýs­inga­ör­yggi. Hið sama gildir um skort á skrán­ingu um mót­t­töku ráðu­neyt­is­ins hinn 20. nóv­em­ber 2013 á fram­burð­ar­skýrslu Tony Omos frá Útlend­inga­stofnun.

Ekki var gætt við­un­andi öryggis við miðlun fyrr­nefndra skýrslu­draga til ráðu­neyt­is­ins frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og fyrr­nefndrar fram­burð­ar­skýrslu frá Útlend­inga­stofnun til ráðu­neyt­is­ins.

Úrskurður Per­sónu­verndar er dag­settur 25. febr­úar, en undir hann ritar meðal ann­ars Björg Thoraren­sen, laga­pró­fessor, sem er stjórn­ar­for­maður Per­sónu­verndar.

Kjarninn mun á næstu mín­útum fjalla ítar­lega um úrskurð Per­sónu­verndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár