Verjendur í Aurum máli vilja fá að yfirheyra dómara málsins

Verj­endur sak­born­inga í Aurum-mál­inu svo­kall­aða hafa lagt fram beiðni þess efnis að tveir dóm­arar í mál­inu, þeir Guðjón St. Mart­eins­son hér­aðs­dóm­ari og Sverrir Ólafsson með­dóm­ari, verði boð­aðir til skýrslu­töku fyrir dómi, til að verj­ast ómerk­ing­ar­kröfu Rík­is­sak­sókn­ara á sýknu­dómi sem kveð­inn var upp í mál­inu í júní.

Verj­endur Lárusar Welding, fyrr­ver­andi for­stjóra Glitnis, Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, athafna­manns, og Bjarna Jóhann­es­sonar, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóra hjá Glitni, lögðu fram beiðn­ina fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær. Rík­is­sak­sókn­ari hefur mót­mælt kröfu verj­end­anna, en mál­flutn­ingur um hana fer fram fyrir dómi þann 11. mars næst­kom­andi.

Ríkissaksóknari fer fram á ómerkingu sökum vanhæfis


Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari, hefur kraf­ist þess að Hæsti­réttur ómerki sýknu­dómana yfir sak­born­ingum í Aurum-mál­inu og því verði vísað aftur heim í hérað til lög­legrar með­ferðar. Embætti Rík­is­sak­sókn­ari byggir kröfu sína á meintu van­hæfi Sverris Ólafs­sonar pró­fess­ors, sem var sér­fróður með­dóm­ari í Aurum-mál­inu, þar sem hann er bróðir Ólafs Ólafs­sonar, sem nýlega hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Hæsta­rétti fyrir aðild sína að Al-Thani mál­inu svo­kall­aða.

Þá byggir krafa rík­is­sak­sókn­ara ekki síður á ummælum sem Sverrir lét falla í fjöl­miðlum um emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara eftir að dómur í Hér­aðs­dómi var upp kveð­inn. Sak­sókn­ari telur ummælin gefa ríka ástæðu til að draga óhlut­drægni Sverris í efa. Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, hefur látið hafa eftir sér í fjöl­miðlum að emb­ætt­inu hafi ekki verið kunn­ugt um ætt­ar­tengsl Sverris og Ólafs meðan málið var til með­ferðar í hér­aðs­dómi og hefur gert athuga­semdir við að dóm­ari hafi ekki upp­lýst um ætt­ar­tengslin. Ólafur hefur sagt að allar líkur séu á að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hefði þá gert ahuga­semd við skipan Sverris. Sverrir gerði Guðjóni St. Mart­eins­syni hér­aðs­dóm­ara grein fyrir tenslum sínum við Ólaf Ólafsson, en ekki sér­stökum sak­sókn­ara.

Fór hörðum orðum um sérstakan saksóknara


Umrædd ummæli Sverris Ólafs­sonar, lét hann falla í frétt hjá RÚV þann 9. júní síð­ast­lið­inn, þar sem hann sak­aði sér­stakan sak­sókn­ara um að reyna að veikja sýknu­dóm­inn í Aurum-mál­inu með því að draga hæfi sitt í efa. Í frétt RÚV sagði Sverrir: „Ég trúi því ekki í eina sek­úndu að sér­stakur sak­sókn­ari hafi ekki vitað af mínum tengslum strax í upp­hafi. Ef hann vissi ekki af mínum tengslum þá ber það vott um afskap­lega léleg og yfir­borðs­kennd vinnu­brögð. Mér finnst við­brögð hans hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvænt­ing­ar­fullar og jafn­vel óheið­ar­legar aðgerðir og hann grípur til þeirra á erf­iðum tímum þegar trú­verð­ug­leiki hans stofn­unar er eig­in­lega í molum.“ Þá má geta þess að Gestur Jónsson, verj­andi Jóns Ásgeirs, hefur tekið undir orð Sverris í fjöl­miðlum, um að hann trúi ekki að sér­stakur sak­sókn­ari hafi ekki verið kunn­ugt um ætt­ar­tengsl mann­anna.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hyggj­ast verj­endur sak­born­ing­anna í Aurum mál­inu sýna fram á með umbeðnum skýrslu­tökum að sér­stökum sak­sókn­ara hafi verið kunn­ugt um bræðra­tengsl Sverris Ólafs­sonar og Ólafs Ólafs­sonar, þrátt fyrir full­yrð­ingar emb­ætt­is­ins um hið gagn­stæða. Þá vilja verj­end­urnir fá stað­fest fyrir dómi að Guðjóni St. Mart­eins­syni hér­aðs­dóm­ara og dóms­for­manni hafi sömu­leiðis verið kunn­ugt um ætt­ar­tengsl mann­anna og talið þau ekki hafa áhrif á hæfi Sverris til að gegna stöðu með­dóm­ara í Aurum-mál­inu.

Beiðni verj­end­anna á sér for­dæmi, en í Baugs­mál­inu svo­kall­aða fóru lög­menn­inn­irnir Gestur Jónsson, verj­andi Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, Jakob R. Möller, verj­andi Tryggva Jóns­sonar, fram á að Sigurður Tómas Magn­ús­son, settur rík­is­sak­sókn­ara í mál­inu, og dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur yrðu kall­aðir fyrir dóm sem vitni vegna mál­flutn­ings um kröfu Jóns Ásgeirs og Tryggva að mál­inu gegn þeim yrði vísað frá dómi. Þeirri beiðni var hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár