Staðlaðar tilkynningar frá Já þegar fyrirtækið segir upp fólki

Upp­lýs­inga­veitan Já hefur ákveðið að loka síma­þjón­ustu­veri sínu í Reykja­nesbæ frá og með 1. júní næst­kom­andi, en við breyt­ing­arnar missa allt að sjö manns vinn­una. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM sendi fjöl­miðlum í dag fyrir hönd Já hf.

Í frétta­til­kynn­ing­unni er haft eftir Lilju Hall­björns­dóttur, þjón­ustu­stjóra Já: „Þetta eru sárs­auka­fullar aðgerðir, bæði að þurfa að fækka í starfs­lið­inu og ekki síður að loka þjón­ustu­ver­inu í Reykja­nesbæ. Þar höfum við haft öfl­uga starfs­stöð og gott fólk.”

Ummælin minna óneit­an­lega á ummæli Sigríðar Mar­grétar Odds­dóttur, for­stjóra Já, í frétta­til­kynn­ingu sem fyr­ir­tækið sendi frá sér í maí árið 2011 þegar til­kynnt var um lokun þjón­ustu­vers Já á Akureyri, þar sem allt að átta manns misstu vinn­una, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ing­unni.

Í umræddri frétta­til­kynn­ingu Já frá því árið 2011, er haft eftir Sigríði Margréti: „Þetta eru sárs­auka­fullar aðgerðir, bæði að þurfa að fækka í starfs­lið­inu og ekki síður að loka þjón­ustu­ver­inu á Akureyri. Þar höfum við haft öfl­uga starfs­stöð og gott fólk.“

Í frétta­til­kynn­ing­unni í dag hefur sem sagt orð­inu Akureyri verið skipt út fyrir orðið Reykja­nes­bær, auk þess sem nú eru sömu ummælin höfð eftir annarri mann­eskju.

Ummæli Sigríðar Mar­grétar frá árinu 2011 voru reyndar aðeins lengri, en hún klikkti þá út með að segja: „Það er á ábyrgð okkar sem stýrum fyr­ir­tæk­inu að tryggja hag allra starfs­manna og við­skipta­vina Já til fram­tíðar með góðum rekstri og með þessum aðgerðum erum við að sinna þeirri skyldu okkar.“

Upp­lýs­inga­veitan Já hf. hagn­að­ist um 311 millj­ónir króna á árinu 2013, og jókst hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins um 54 millj­ónir króna frá árinu áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár