Nánast öll fjölgun starfa í fyrra var í ferðaþjónustu

Fólki sem starf­aði við ferða­þjón­ustu og tengdar greinar fjölg­aði um 2.700 á árinu 2014. Alls fjölg­aði starf­andi Íslend­ingum um 2.800 á því ári. Því eru vís­bend­ingar um að vöxtur ferða­þjón­ustu beri ábyrgð á nær allri fjölgun starfa í fyrr.Þetta kemur fram í grein­ingu Ólafs Más Sig­urðs­sonar, sér­fræð­ings hjá Hagstofu Íslands, sem gerð var að beiðni Morg­un­blaðs­ins og sagt er frá í blaði dags­ins.

Alls voru rúm­lega 182 þús­und manns starf­andi á Íslandi í jan­úar 2015. Þeir hafa aldrei verið fleiri. Um tólf þús­und manns hafi starfa við rekstur gisti­staða og veit­inga­rekstur um síð­ustu ára­mót og greinin var þar af leið­andi orðin sú fimmta fjöl­menn­asta á land­inu. Greinin er til að mynda orðin stærri en bygg­inga­geir­inn, þar sem 10.900 manns störf­uðu á sama tíma.

Gríðarleg fjölgun ferðamanna


Um 62.700 erlendir ferða­menn fóru frá land­inu í jan­úar sam­kvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar. Það eru um 16.100 fleiri erlendir ferða­menn en í jan­úar á síð­asta ári.

Aukn­ingin nemur 34,5 pró­sentum á milli ára, en adrei hafa fleiri ferða­mann mælst í jan­úar frá því að mæl­ingar Ferða­mála­stofu hófust. Á síð­ustu fimm árum hefur fjöldi ferða­manna í jan­úar nærri þre­fald­ast, en þar munar mestu um mikla fjölgun Breta, en fjöldi ferða­manna frá Bret­landseyjum hefur fimm­fald­ast frá árinu 2010.

Heild­ar­fjöldi erlendra ferða­manna sem komu til Íslands á árinu 2014 er er talin vera um 1,1 milljón. Tæplega ein milljón kom um Leifs­stöð og um 121 þús­und með far­þeg­ar­skipum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár