Pæling dagsins: Á almenningur að sitja uppi með tjónið?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Bréf­rit­ari fékk áhuga­vert sím­tal á dög­unum. Þar var talað fyrir sjón­ar­miðum, sem voru ein­föld en um leið athygl­is­verð og með sterkum sið­ferð­is­boð­skap. Í stuttu máli voru þau þessi: Stjórn­völd hafa nú ein­stakt tæki­færi til þess að bæta almenn­ingi á Íslandi upp gríð­ar­legt og umfangs­mikið tjón sem föllnu bank­arnir ollu með óábyrgum og ólög­legum við­skipta­háttum áður en þeir hrundu til grunna. Almenn­ingur reisti hag­kerfið við aftur, að miklu leyti með því að taka lán. Íslenska ríkið er nú skuldum vafið og með fjár­magns­höft sem eru farin að skaða fram­tíð­ar­mögu­leika fólks. Stjórn­völd verða nú að sækja fé í þrotabú föllnu bank­anna og ein­fald­lega bæta tjónið. Hvers vegna eiga skatt­greið­endur að sitja uppi með tjón þess­ara banka? Snýst þessi staða sem núna er uppi ekki um þetta, að ein­fald­lega leið­rétta tjónið?

Svo mörg voru þau orð. Það verður for­vitni­legt að sjá hvort þessi sjón­ar­mið muni ráða för við afnám fjár­magns­haft­anna.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár