Jóhannes Þór, Ásmundur Einar og skrifstofustjóri ráðuneytisins fengu tölvupóstinn frá Epli

Erindi þar sem starfs­maður Eplis, umboðs­að­ili Apple á Íslandi, óskaði eftir aðstoð for­sæt­is­ráð­herra við að koma á fundi við ráða­menn tækniris­ans til að vekja áhuga þeirra á að reisa gagna­ver á Íslandi, var sent Jóhann­esi Þór Skúla­syni og Ásmundi Einari Daðasyni, aðstoð­ar­mönnum for­sæt­is­ráð­herra, og Ágústi Geir Ágústs­syni skrif­stofu­stjóra í ráðu­neyt­inu.

Erindið var sent 24. mars á síð­asta ári, og var aldrei svarað, en ráðu­neytið hyggst kanna ástæður þess að því var ekki svarað. Í erind­inu sem Epli sendi for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, og Kjarninn hefur undir höndum, segir meðal ann­ars:

„Um nokk­urt skeið höfum við verið að benda for­svars­mönnum Apple á kosti þess að skoða Ísland sem væn­legan kost fyrir gagna­ver en einn helsti ókost­ur­inn hefur alltaf verið skortur á sæstreng til N-Ameríku. Nú er orðið ljóst að sú hindrun verður ekki til staðar mikið lengur og höfum við því kom­ist lengra með þessar við­ræður.

Okkur langar að leita til for­sæt­is­ráð­herra eftir aðstoð við að koma á fundi við ráða­menn Apple í Banda­ríkj­unum til að vekja áhuga þeirra á að reisa gagna­ver á Íslandi. Við erum í sam­bandi við fólk í höf­uð­stöðvum Apple sem er reiðu­búið til að koma á fundi ef hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra hugn­ast að heim­sækja höf­uð­stöðv­arnar í Cupertino í Kali­forníu.

Það er aug­ljóst að stóru tæknirisarnir munu koma til með að reisa gagna­ver á Íslandi og þar með auka það for­skot sem Ísland hefur nú þegar öðl­ast með fram­úr­skar­andi mannauð og þekk­ingu á þessu sviði.

Hugs­an­lega getur þessi fundur átt sam­leið með öðrum erindum for­sæt­is­ráð­herra til Banda­ríkj­anna. Einnig væri upp­lagt að taka til umræðu á slíkum fundi mik­il­vægi þjóð­tung­unnar í tækni­ver­öld­inni fyrir smá­þjóðir á borð við Ísland, sér­stöðu lands­ins sem til­rauna­mark­aðs sem og gríð­ar­lega grósku í hug­bún­að­ar­þróun.“

Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu frá því í gær segir:

„For­sæt­is­ráð­herra sinnir árlega fjölda erinda frá inn­lendum og erlendum aðilum til að liðka fyrir fjár­fest­ingum og atvinnu­upp­bygg­ingu hér á landi. Ekki hefur hins vegar tíðkast að for­sæt­is­ráð­herra ferð­ist sér­stak­lega milli landa til að koma á fundum milli ein­stakra fyr­ir­tækja og því taldi ráðu­neytið að ekki væri hægt að verða við ósk starfs­manns Skakkaturns ehf.

Ráðu­neytið harmar að tölvu­póst­inum frá Skakkaturni ehf. hafi ekki verið svarað og kannar nú ástæður þess.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár