Lögregla kærð 89 sinnum fyrir misbeitingu valds á sjö ára tímabili

Lög­reglu­menn voru í 89 atvikum kærðir til emb­ættis Rík­is­sak­sókn­ara fyrir meinta mis­beit­ingu valds í starfi á árunum 2008 til 2014. Þetta kemur fram í skrif­legu svari Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Birgittu Jóns­dóttur þing­manns Pírata, sem lagt var fram fyrir Alþingi í dag.

Árið 2008 voru kær­urnar 15 tals­ins, þar af voru þrettán vegna meints harð­ræðis og ein vegna nið­ur­lægj­andi hátt­semi við lík­ams­leit. Rannsókn var hætt í fimm málum, átta mál voru felld niður og í einu máli var fallið frá sak­sókn. Í einu mál­inu var ákært, þar sem sak­fellt var fyrir lík­ams­árás en sýknað af ákæru um brot í starfi.

Kærur á hendur lög­reglu fyrir mis­beit­ingu valds í starfi voru 12 að tölu árið 2009. Ellefu mál voru vegna meints harð­ræðis lög­reglu, tvö málin lutu að illri með­ferð þar sem við­kom­andi var haldið of lengi í fanga­klefa. Í öðru mál­inu var lög­regla sökuð um að hafa látið undir höfuð leggj­ast að hafa sam­band við ætt­ingja eða lög­menn. Í öllum mál­unum var ýmist rann­sókn hætt eða þau felld niður, nema einu þar sem sak­fellt var fyrir brot í starfi fyrir Hæsta­rétti Íslands.

Rík­is­sak­sókn­ara bár­ust 14 kærur árið 2010 þar sem lög­reglu­menn voru sak­aðir um mis­beit­ingu valds í starfi. Tólf kær­anna lutu að meintu harð­ræði lög­reglu, ein kæran var vegna meintrar hót­unar og önnur vegna nið­ur­lægj­andi með­ferðar við hand­töku. Rannsókn var hætt eða mál felld niður í öllum til­vikum, nema einu þar sem kæra var dregin til baka.

Árið 2011 voru kær­urnar ell­efu tals­ins. Sjö kærur vegna meints harð­ræðis, tvær vegna nið­ur­lægj­andi með­ferðar, ein vegna illrar með­ferðar og í einu til­viki var lög­reglu­maður kærður fyrir að leyna gögnum vegna gæslu­varð­halds. Í öllum mál­unum var ýmist rann­sókn hætt eða þau felld niður.

Kærur á hendur lög­reglu­mönnum fyrir mis­beit­ingu valds í starfi voru tólf tals­ins árið 2012. Ellefu mál­anna voru vegna meints harð­ræðis og í einu til­felli var and­lát manns í vörslu lög­reglu kært til Rík­is­sak­sókn­ara. Í tveimur mál­anna var rann­sókn hætt, sjö mál voru felld niður, kæru í einu máli var vísað frá og í einu til­viki var fallið frá sak­sókn. Eitt málið, er varð­aði harð­ræði við hand­töku, leiddi til ákæru þar sem lög­reglu­maður var sak­felldur fyrir Hér­aðs­dómi fyrir brot í starfi.

Árið 2013 barst Rík­is­sak­sókn­ara 20 kærur þar sem lög­reglu­menn voru sak­aðir um mis­beit­ingu valds í starfi. Það ár bár­ust flestar kær­urnar þess efnis á áður­nefndu tíma­bili sem var til skoð­unar. Fjórtán mál­anna voru vegna meints harð­ræðis, þrjár kær­urnar lutu að nið­ur­læg­ingu við hand­töku, í einu mál­inu var lög­reglu gefið að sök lík­ams­árás vegna afskipta af hand­töku, og í einu til­viki var lög­regla kærð vegna lík­ams­meið­ingar af gáleysi á vett­vangi og öðru var lög­reglu gefið að sök að hafa ekki virt ósk um rétt til lög­manns. Í fimmtán málum var rann­sókn hætt eða þau felld niður. Í fjórum málum var kærum vísað frá, en í einu til­viki var lög­reglu­maður dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi vegna harð­ræðis við hand­töku.

Á síð­ast ári voru fimm mál, þar sem lög­reglu­menn voru sak­aðir um mis­beit­ingu valds, kærð til Rík­is­sak­sókn­ara. Í þremur mál­anna var kærum vísað frá, í einu mál­inu var rann­sókn hætt og í því fimmta þótti ekki til­efni til að fram­kvæma rann­sókn.

Af þeim 89 málum, þar sem lög­reglu­menn voru sak­aðir um mis­beit­ingu valds, sem bár­ust Rík­is­sak­sókn­ara á árunum 2008 til 2014, leiddu fjögur þeirra til sak­fell­ingar yfir lög­reglu­mönnum fyrir dóm­stólum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár