Yfirlýstur stuðningsmaður ISIS hefur óskað eftir hæli á Íslandi

Hæsti­réttur Íslands hefur stað­fest úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem hafn­aði kröfu lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að tveir hæl­is­leit­endur verði úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald. Menn­irnir eru eft­ir­lýstir á Norðu­lönd­unum fyrir að hafa gefið yfir­völdum þar rangar per­sónu­upp­lýs­ingar um sig og sam­kvæmt frétt á mbl.is hefur verið farið fram á fram­sal þeirra. Í úrskurði Hér­aðs­dóms kemur fram að annar mað­ur­inn, sem kveðst vera fæddur árið 1998, sé yfir­lýstur stuðn­ings­maður ISIS hryðju­verka­sam­tak­anna, hann elski sam­tökin og vilji taka þátt í stríði fyrir guð.

Menn­irnir leit­uðu á lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu þann 21. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þeir sögð­ust vera bræður og að þeir hefðu komið til lands­ins dag­inn áður. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans komu menn­irnir til lands­ins frá Danmörku, þar sem lög­reglu­yf­ir­völd þurftu að hafa afskipti af þeim. Menn­irnir voru með engin skil­ríki með­ferðis þegar þeir komu á lög­reglu­stöð­ina. Þeir sóttu um hæli hér á landi og var komið í hús­næði á vegum Reykja­vík­ur­borgar, sá yngri var vistaður á vegum barna­verndar Reykja­víkur.

Hefur sýnt af sér sjálfsskaðandi hegðun


Maðurinn, sem kveðst vera fæddur árið 1998, fór fljót­lega að sýna af sér sjálfs­skað­andi hegðun, sam­kvæmt grein­ar­gerð lög­reglu­stjóra sem minnst er á í úrskurði Hér­aðs­dóms. Hann hafi meðal ann­ars brennt gat á rúmið sitt og þá sagst vera að reyna að kveikja í sér. Þá hafi hann sýnt af sér ógn­andi hegðun gagn­vart starf­sólki barna­verndar Reykja­víkur, barið í veggi og stiga og unnið skemmdir á bif­reið starfs­manns. Hegðun hans hafi svo versnað til muna kvöldið áður en til stóð að senda hann í ald­urs­grein­ingu hjá tann­lækni.

Í grein­ar­gerð lög­reglu­stjóra kemur fram að lög­regla hafi fengið heim­ild barna­verndar til að skoða tölvu í eigu barna­verndar sem mað­ur­inn hafði notað meðan hann var vistaður hjá þeim. Við þá skoðun kom í ljós að mað­ur­inn hafði verið að skoða mikið af efni sem teng­ist hryðju­verka­sam­tök­unum eins og Íslamska rík­inu og Boko Haram, þar sem hann var meðal ann­ars að skoða mynd­bönd þar sem sjá má aftökur á fólki.

Þegar mann­inum var til­kynnt um nið­ur­stöður ald­urs­grein­ingar tann­læknis brást hann ókvæða við og við­hafði hót­anir við við­stadda um að sprengja þús­und manns í loft upp ef hann yrði sendur úr landi. Þá sagði hann einnig að hann myndi fremja sjálfs­morð.

Lögregla telur hættu stafa af mönnunum


Meintur bróðir manns­ins var strax fyrsta sól­ar­hring­inn eftir að þeir sóttu um hæli hér á landi vistaður á bráða­mót­töku geð­deildar vegna sjálfs­vígs­hót­anna, og þá hafi hann örfáum dögum seinna verið lagður inn á bráða­mót­töku geð­deildar vegna hnífs­s­tungu sem hann sagð­ist hafa veit sér sjálfur. Í kjöl­farið var hann sendur aftur á geð­deild Land­spít­al­ans en þaðan var hann úrskurð­aður sam­dæg­urs.

Lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins byggði gæslu­varð­halds­kröfu sína meðal ann­ars á mati emb­ætt­is­ins að aðgerðir og athafnir mann­anna eftir að þeir komu til lands­ins séu þess eðlis af af þeim stafi hætta og óör­yggi.

Hæsti­réttur hafn­aði gæslu­varð­halds­kröfu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem emb­ættið hafi ekki reynt væg­ari úrræði en gæslu­varð­hald, ekki megi beita útlend­ing varð­haldi nema það sé nauð­syn­legt til að ná lög­mætu mark­miði, sem að er stefnt, og að því verði ekki náð með öðru og væg­ara móti.

Dómur Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár