Inga Dóra fékk 300 milljóna styrk - líkt við Nóbelsverðlaun

Inga Dóra Sig­fús­dóttir, pró­fessor við Háskól­ann í Reykja­vík, hefur hlotið rann­sókn­ar­styrk frá Evr­ópu­sam­band­inu að upp­hæð tvær millj­ónir evra eða um 300 millj­ónir íslenskra króna. „Um gríð­ar­lega við­ur­kenn­ingu er að ræða, fyrir ára­tuga starf Ingu Dóru Sig­fús­dóttur, fyrir íslenskt fræða­sam­fé­lag og Háskól­ann í Reykja­vík,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá Háskól­anum í Reykja­vík.

Inga Dóra er annar Íslend­ing­ur­inn sem hlýtur styrk frá European Research Council (ERC) og er afar sjald­gæft að fræði­menn sem ein­stak­lingar fái svo stóran styrk en það er Inga Dóra sjálf sem stendur á bak við umsókn­ina. Þeir sem til þekkja segja að það megi líkja þessu við að fá Nóbels­verð­laun í rann­sókn­ar­starfi enda hafa margir Nóbels­verð­launa­hafar jafn­framt hlotið ERC-styrki.

Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskól­ans í Reykja­vík, fagnar styrknum sér­stak­lega í frétta­til­kynn­ingu og segir hann mikla við­ur­kenn­ingu fyrir skól­ann og Ingu Dóru. „Við í Háskól­anum í Reykja­vík erum gríð­ar­lega stolt og ánægð með þá við­ur­kenn­ingu sem felst í þessum styrk. Það eru aðeins allra fremstu háskólar og allra bestu vís­inda­menn Evrópu sem fá þessa styrki frá Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta er því mikil við­ur­kenn­ing á því mik­il­væga rann­sókn­ar­starfi sem Inga Dóra hefur stýrt hér í mörg ár. Við óskum henni hjart­an­lega til ham­ingju með styrk­inn og heið­ur­inn sem honum fylgir, en hún er mjög vel að þessu komin,“ segir Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskól­ans í Reykja­vík.

Inga Dóra er pró­fessor við sál­fræði­svið við­skipta­deildar Háskól­ans í Reykja­vík og jafn­framt pró­fessor við Columbia háskóla í New York. Hún hefur í sam­starfi við aðra fræði­menn stundað rannóknir á líðan, hegðun og heilsu barna og ung­linga í 20 ár. Stór liður í þeim rann­sóknum er könnun sem lögð er fyrir íslensk ung­menni á hverju ári til að fá vit­neskju um heilsu þeirra, hegðun og líðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár