„Þetta er algert skipbrot“

„Þetta sýnir að stjórn­ar­flokk­arnir ráða ekki við að standa að sátt um skyn­sam­lega fram­tíð­ar­stefnu fyrir sjáv­ar­út­veg­inn sem byggir á grund­vall­ar­regl­unni um eign­ar­hald þjóð­ar­innar á auð­lind­inni. Þetta er algert skip­brot.“ Þetta segir Árni Páll Árnason, þing­maður og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í ljósi tíð­inda af því að ekki sé von á frum­varpi um breyt­ingar á stjórn fisk­veiða á yfir­stand­andi þingi, og bara alls ekki að óbreyttu.

Í sam­tali við RÚV segir Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, að vegna ágrein­ings milli stjórn­ar­flokk­anna um hver skuli fara með for­ræði yfir kvót­anum sé ekki von á nýju kvóta­frum­varpi nema for­sendur breyt­ist. Málið sé komið á enda­stöð. Hins vegar verði frum­varp um veiði­gjöld tekið fyrir á vor­þingi sem verði lagt fram fljót­lega.

Árni Páll gagn­rýnir rík­is­stjórn­ar­flokk­ana harð­lega fyrir að hafa ekki náð sátt um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu. „Eina sem stjórn­ar­flokk­arnir virð­ast ráða við er að lækka veiði­gjöldin þvert á ráð­gjöf sér­fræð­inga og einka­væða auð­lind­ina. Afleið­ingin er óvissa í grein­inni sem dregur úr fjár­fest­ingum og spillir fram­tíð­ar­horfum hennar, eins og (Kolbeinn Árnason) fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi rakti svo ágæt­lega í kvöld­fréttum RÚV.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár