Telja Björgólf Thor hafa brotið lög með rangri upplýsingagjöf til Landsbankans

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa komið fram ýmsar upp­lýs­ingar, við gagna­öflun í tengslum við und­ir­bún­ing hóp­máls­sóknar á hendur Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, sem benda til þess að rangar upp­lýs­ingar í reikn­ingum Lands­bank­ans hafi verið gefnar með sak­næmum hætti og að und­ir­lagi Björg­ólfs Thors.

Lög­fræði­stofan Landslög hefur að und­an­förnu unnið að und­ir­bún­ingi á hóp­máls­sókn á hendur Bjór­gólfi Thor vegna meintra rangra og blekkj­andi upp­lýs­inga í reikn­ingum Lands­bank­ans, þar sem meðal ann­ars skrán­ing á raun­veru­legu eign­ar­haldi Björg­ólfs í bank­anum var ábóta­vant.

Rangar og ófullnægjandi upplýsingar


Und­ir­bún­ingur og gagna­öflun vegna máls­sókn­ar­innar hefur verið unnin í sam­starfi við nokkra fyrr­ver­andi hlut­hafa í Lands­bank­anum, meðal ann­ars Vilhjálm Bjarna­son, fjár­festi og Alþing­is­mann, og Stapa líf­eyr­is­sjóð. Þá má nefna að fyrir um ári síðan fóru fram umfangs­miklar skýrslu­tökur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur yfir sam­starfs­mönnum Björg­ólfs Thors, fyrr­ver­andi starfs­mönnum Lands­bank­ans og end­ur­skoð­endum.

Málið verður höfðað af hlut­höfum sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna hluta­bréfa­kaupa í Lands­bank­anum frá árs­lokum 2005 fram að banka­hrun­inu. Rök­stuðn­ing­ur­inn verður reistur á því að rangar eða ófull­nægj­andi upp­lýs­ingar hafi verið gefnar í reikn­ingum bank­ans um umfangs­miklar lán­veit­ingar til Björg­ólfs Thors og raun­veru­leg áhrif hans og Samson í bank­anum. Áhrifin hafi í raun verið slík að Samson hafi verið skylt að gera öðrum hlut­höfum í Lands­bank­anum yfir­tökutil­boð, sem ekki hafi verið gert.

Öllum hluthöfum Landsbankans boðið að taka þátt


Eins og áður segir hafa ýmsar upp­lýs­ingar komið fram við gagna­öflun vegna hóp­máls­sókn­ar­innar sem benda til að rangar upp­lýs­ingar í reikn­ingum Lands­bank­ans hafi verið gefnar með sak­næmum hætti að und­ir­lagi Björg­ólfs Thors. Landslög eru ekki til­búin að veita frek­ari upp­lýs­ingar á þessu stigi, en lög­fræði­stofan hyggst kynna nið­ur­stöður sínar innan tíðar. Á sama tíma verður öllum hlut­höfum Lands­bank­ans, sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni, boðið að taka þátt í hóp­máls­sókn­inni á hendur Björgólfi Thor.

Fyr­ir­huguð máls­höfðun, verður sú fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi er lýtur að dóms­málum tengdum banka­hrun­inu, en mál­sóknin verður reist á nýlegum ákvæðum rétt­ar­farslaga sem heim­ila hóp­máls­sóknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár