Sakfelling Ólafs Ólafssonar hefur engin áhrif á Samskip

Ólafur Ólafsson, stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi Samskipa Holding B.V., hol­lensks eign­ar­halds­fé­lags Samskipa hf., hlaut fjög­urra ára fang­els­is­dóm fyrir aðild sína að Al-Thani mál­inu svo­kall­aða í Hæsta­rétti Íslands í síð­ustu viku. Pálmar Óli Magn­ús­son for­stjóri Samskipa segir í sam­tali við Kjarnann, að sak­fell­ing Ólafs hafi engin áhrif á rekstur skipa­fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi.

Þá er honum ekki kunn­ugt um hvort Ólafur hyggst víkja úr stjórn hol­lenska eign­ar­halds­fé­lags­ins, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans hefur dóm­ur­inn ekki heldur áhrif á hæfi hans til að eiga sæti í stjórn móð­ur­fé­lags Samskipa í Hollandi.

Svokölluð B.V. félög, lúta ekki sér­stöku eft­ir­liti hjá hol­lenskum eft­ir­lits­stofn­unum, og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur sak­fell­ing Ólafs Ólafs­sonar í Hæsta­rétti ekki áhrif á hæfi hans til stjórn­ar­setu hjá Sam­skipum Holding B.V.

Hins vegar segir heim­ild­ar­maður Kjarnans, lög­maður hjá lög­manns­stof­unni CMS í Hollandi, að hol­lenska dóms­mála­ráðu­neytið geti kraf­ist afsagnar stjórn­ar­manna með hlið­sjón af alvar­leika brots­ins sem þeir hafa verið sak­felldir fyrir. Hins vegar sé afar sjald­gæft að ráðu­neytið hafi frum­kvæði að slíku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár