TOPP 10: Bestu kvikmyndir ársins 2014

Nú þegar kvik­mynda­verð­launa­há­tíð­ar­ver­tíðin stendur sem hæst, og keppst er við að verð­launa hvað var best á árinu 2014, er nauð­syn­legt fyrir les­endur Kjarnans að fá skoðun Kristins Hauks Guðna­sonar sagn­fræð­ings og kvik­mynda­sér­fræð­ings á hvað hafi staðið upp úr.

1. Whiplash


Stór­feng­leg mynd sem segir frá ungum trommu-nem­anda, Neiman, og kenn­ar­anum hans, Fletcher. Kenn­ar­inn er leik­inn af J.K. Simmons og er þetta ein­hver besta frammi­staða í kvik­mynd í mörg ár og hefur fengið fjöld­ann allan af verð­launum fyrir. Fletcher er ómann­lega strangur og mis­kunn­ar­laus við nem­endur sína og Neiman gerir nán­ast hvað sem er til þess að halda sæti sínu í skóla­hljóm­sveit­inni. Hvort þeir eru að vinna saman eða gegn hvorum öðrum er oft mjög óljóst. Myndin verður að nokk­urs konar ein­vígi milli þeirra tveggja og aðrar per­sónur skipta í raun litlu máli. Klipp­ingin, hljóð­vinnslan og kvik­mynda­takan er óað­finn­an­leg og tón­listin er bráð­skemmti­leg. Hand­ritið er líka gott, þetta er ein frum­leg­asta kvik­mynd sem hefur komið frá Hollywood í langan tíma og besta mynd árs­ins 2014.

http://youtu.be/7d_jQycdQGo

2. Fury


Ein besta stríðs­mynd sein­ustu ára. Hún ger­ist á vest­ur­víg­stöðv­unum á loka­dögum seinni heim­styrj­ald­ar­innar. Þjóð­verjar eru aðfram komnir og eru farnir að kalla börn og gam­al­menni í her­inn en engu að síður mæta banda­menn mik­illi mót­spyrnu. Myndin fjallar um skrið­dreka­sveit sem Wardaddy (Brad Pitt) stýrir. Her­menn­irnir á skrið­drek­anum eru vissu­lega karlar í krap­inu en langt frá því að vera galla­lausir. Það sem skín hvað mest í gegn er hat­rið sem þeir hafa á óvin­inum. Þeir víla það t.d. ekki fyrir sér að taka stríðs­fanga af lífi á staðnum. Myndin ein­blínir á ungan og óreyndan strák sem er hent inn í átökin og fær við­ur­nefnið Machine. Bar­daga­sen­urnar eru stór­kost­legar og sér­stakt að fá að fylgj­ast með orr­ustum nán­ast ein­göngu frá sjón­ar­horni skrið­dreka­her­manna.

http://youtu.be/-OGvZoIrXpg

3. Force Majeure


Sænsk mynd sem ger­ist í frönsku Ölpunum og fjallar um fjög­urra manna fjöl­skyldu í skíða­ferða­lagi. Myndin hefst þegar fjöl­skyldan mætir á Les Arcs skíða­svæðið og endar þegar þau fara þaðan. Þegar stýrt snjó­flóð ógnar fjöl­skyld­unni bregst fjöl­skyldu­fað­ir­inn ekki við sem skyldi og kona hans reið­ist. Hann vill þó ekki gang­ast við því og segir upp­lifun sína af atburð­inum aðra. Allt ferða­lagið er nú markað af þessu og reynir á bönd hjóna­bands­ins. Þetta hljómar eins þung mynd en hún er það alls ekki. Hún rokkar milli þess að vera bráð­fyndin yfir í það að vera óbæri­lega vand­ræða­leg og allt þar á milli. Lands­lagið og stað­setn­ingin gefa mynd­inni líka mjög sér­stakan og hrá­slaga­legan blæ. Norska leik­konan Lisa Loven Kongsli er fram­úr­skar­andi í mynd­inni.
http://youtu.be/3nTJIc_e6Ns

4. Nightcrawler


Nightcrawler er mynd sem er alger­lega borin á herðum aðal­leik­ar­ans Jake Gyl­len­haal. Hann leikur Lou Bloom, ungan mann sem finnur sig í því að kvik­mynda slys og glæpi að næt­ur­lagi. Hann fær vænar fúlgur fyrir að selja sjón­varps­stöðvum myndefnið og brýtur alla sið­ferð­is­múra til að fá sem svæsnastar upp­tökur. Frammi­staða Gyl­len­haal er mögnuð, hann er eins og sósíópati sem hefur farið á of mörg Dale Carnegie nám­skeið og nær­vera hans er ein­stak­lega óþægi­leg. Auka­leik­ar­arnir Rene Russo og Riz Ahmed standa sig einnig með prýði sem sam­starfs­fólk hans. Myndin er einnig gagn­rýni á frétta­mennsku, hvað sé í raun frétt­næmt og hvað ekki. Hvað vill fólk sjá í frétt­unum?

http://youtu.be/X8kYDQan8bw

5. Draft Day


Í Draft Day er skyggnst bak­við tjöldin í heimi NFL deild­ar­innar, ekki ósvipað og gert var í MLB deild­inni í kvik­mynd­inni Money­ball. Kevin Costner leikur fram­kvæmda­stjóra Cleveland Browns liðs­ins sem stendur óvænt frammi fyrir þeirri ákvörðun að hafa fyrsta val­rétt í nýliða­val­inu. Hann þarf að kljást við þjálf­ara liðs­ins (Denis Leary), eig­and­ann (Frank Langella) og fram­kvæmda­stjóra ann­arra liða sem og auð­vitað að kom­ast að réttri nið­ur­stöðu. Svo er auð­vitað róm­an­tískt twist til staðar. Myndin er langt frá því að vera eitt­hvað tíma­móta­verk í kvik­mynda­list­inni, hún er mjúk og virkar jafn­vel eins og aug­lýs­ing fyrir NFL deild­ina en hún er skyldu­á­horf fyrir alla áhuga­menn um amer­ískar íþróttir.

http://youtu.be/K3SlVsdUuBY

6. The Imitation Game


Þessa breska mynd segir frá ævi stærð­fræð­ings­ins Alan Turing og ein­blínir sér­stak­lega á störf hans í bresku leyni­þjón­ust­unni á stríðs­ár­unum. Turing vann við það að hlera dulkóðuð skila­boð sem nas­ist­arnir sendu á milli sín með svoköll­uðum enigma vélum. Vissu­lega er tölu­vert um ein­fald­anir og ýkjur í mynd­inni en það er leyfi­legt í kvik­myndum. Myndin er bráð­skemmti­leg, fróð­leg og spenn­andi en hún er líka harð­neskju­leg. Karakt­er­arnir standa frammi fyrir að láta her­menn deyja til þess eins að halda leynd­ar­mál­inu og með­ferðin á Turing eftir stríðið er fer­leg þegar hann var dæmdur fyrir sam­kyn­hneigð. Myndin er mjög vel unnin í alla staði en upp úr stendur frammi­staða Benedicts Cumberbatch sem Turing og á hann fylli­lega skilið að vinna Ósk­arsverð­laun.

http://youtu.be/S5CjKEFb-sM

7. Citizenfour


Besta heim­ild­ar­mynd árs­ins með tölu­verðum yfir­burðum. Upp­ljóstr­ar­inn Edward Snowden valdi kvik­mynd­gerð­ar­kon­una Lauru Poitras til þess að taka upp þessa atburðu­ar­rás. Þau hitt­ust í Hong Kong, ásamt tveimur blaða­mönnum frá breska dag­blað­inu The Guardian. Þaðan opin­bera þau leynd­ar­mál NSA, eitt af öðru. Fyrst er það gert án þess að Snowdens sé getið, en loks gefa þau upp hver sé upp­ljóstr­ar­inn. Allan tím­ann er Snowden lok­aður inni á hót­el­her­bergi en Glenn Greenwald blaða­maður er röddin út á við og kemur fram í við­tölum. Myndin er eig­in­lega spennu­mynd. Snowden er í sam­bandi við unn­ustu sína sem er undir stöð­ugu eft­ir­liti og þrýst­ingi frá stjórn­völdum. Það stans­laust ótti við hler­anir eða þaðan af verra og mik­ill ágangur frá frétta­mönum. Hann veit líka að hann verður að kom­ast úr landi undir eins.

http://youtu.be/XiGwAvd5mvM

8. Leviathan


Levi­at­han ger­ist í smá­þorpi í norð­ur­hluta Rúss­lands, við Barents­haf. Myndin fjallar um bar­áttu fólks við að halda hús­inu sínu sem bæj­ar­yf­ir­völd vilja láta rífa en hún segir í raun miklu stærri sögu. Hún fjallar um ýmis sam­fé­lags­mein sem hrjá Rússland Pútíns. Spill­ingin er gríð­ar­leg og kirkjan tekur þátt í því. Bæj­ar­stjór­inn er and­styggi­leg per­sóna sem beitir hvaða ráðum sem er til þess að koma hús­inu frá og prest­ur­inn í þorp­inu eggjar hann áfram og leið­beinir honum. Önnur mein sem tek­ist er á við eru t.d. áfeng­is­vanda­mál Rússa sem eru vel þekkt og svo byssu­menn­ingin. Myndin hefur valdið tölu­verðu fjaðrafoki í heima­land­inu og sögð „and-rúss­nesk“ og árás á rétt­trún­að­ar­kirkj­una. Jafnvel hefur verið talað um að banna hana.

http://youtu.be/2oo7H25kirk

9. Tusk


Svört hryll­ings­mynd sem fór ekki hátt, hvorki í miða­sölu né hjá gagn­rýnendum en er engu að síður frá­bær. Hug­myndin af mynd­inni kvikn­aði í miðjum hlað­varps­þætti hjá leik­stjór­anum Kevin Smith.....Hvað ef manni yrði breytt í rost­ung? Kosið var á Twitter um hvort ráð­ast ætti að gera slíka kvik­mynd og svarið var nán­ast ein­hljóða já. Myndin fjallar um hlað­varps­þátta­stjórn­anda (Justin Long) sem lendir í klónnum á sjúkum raðmorð­ingja, sem reynir að breyta honum í rost­ung. En unnusta hans og sam­starfs­fé­lagi reyna að koma honum til bjargar. Það besta við mynd­ina er frammi­staða Michael Parks sem raðmorð­ingj­ans. Parks hefur lengi verið fal­inn dem­antur í Hollywood sem bæði Kevin Smith og Quentin Tar­antino hafa notað á frá­bæran hátt.

http://youtu.be/trTTjvPCLJQ

10. Interstellar


Christopher Nolan sýndi það með kvik­mynd­unum Memento og Inception að hann kann að gera flókin vís­inda­skáld­skap sem samt nær miklum vin­sældum. Það sama á við um Inter­stellar. Með aðeins mennta­skóla­eðl­is­fræði á bak­inu getur verið próf­raun að fylgj­ast með sögu­þræð­inum en hún er engu að síður mjög spenn­andi og skemmti­leg. Þetta er nokk­urs konar heimsenda­æv­in­týri þar sem fram­tíð mann­kyns veltur á nokkrum geim­förum. Tíminn, afstæði og fjar­lægðir er það sem hetj­urnar Matthew McConaughey og Anne Hathaway þurfa að kljást við. Við Íslend­ingar teljum okkur eiga hlut í þess­ari mynd þar sem atriði á einni af plánet­unum sem geim­far­arnir heim­sækja eru tekin upp hér á landi. Það er verra fyrir okkur að sú pláneta reynd­ist vera óbyggi­leg með öllu.

http://youtu.be/zSWdZVtXT7E

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár