Dómur í Al-Thani málinu hefur ekki áhrif á hæfi Ólafs til stjórnarsetu

Ólafur Ólafsson, stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi hol­lenska félags­ins Samskip Holding B.V. sem er móð­ur­fé­lag Samskipa hf, hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Hæsta­rétti Íslands í gær fyrir aðild sína að Al-Thani mál­inu svo­kall­aða. Dómurinn hefur ekki áhrif á hæfi Ólafs til stjórn­ar­setu á Íslandi, þar sem hann var sýkn­aður af ákæru­lið máls­ins þar sem honum var gefin að sök hlut­deild að umboðs­svikum.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur dóm­ur­inn ekki heldur áhrif á hæfi hans til að eiga sæti í stjórn móð­ur­fé­lags Samskipa í Hollandi.

Sekur um hlutdeild að markaðsmisnotkun


Í 66. grein laga um hluta­fé­lög segir að stjórn­ar­menn eða fram­kvæmda­stjórar megi ekki hafa hlotið dóm í tengslum við atvinnu­rekstur á síð­ustu þremur árum fyrir refsi­verðan verknað sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum, lögum um hluta­fé­lög, einka­hluta­fé­lög, bók­hald, árs­reikn­inga, gjald­þrot eða opin­ber gjöld.

Kveðið er á um umboðs­svik í 249 grein almennra hegn­ing­ar­laga, en þar segir: „Ef maður, sem fengið hefur aðstöðu til þess að gera eitt­hvað, sem annar maður verður bund­inn við, eða hefur fjár­reiður fyrir aðra á hendi, mis­notar þessa aðstöðu sína, þá varðar það fang­elsi allt að 2 árum, og má þyngja refs­ing­una, ef mjög miklar sakir eru, allt að 6 ára fang­elsi.“

Ólafur var sak­felldur fyrir aðild að mark­aðs­mis­notkun í Al-Thani mál­inu, en kveðið er á um þau atriði sem falla undir mark­aðs­mis­notkun í lögum um verð­bréfa­við­skipti.

Engin viðbrögð frá Samskipum


Svokölluð B.V. félög, lúta ekki sér­stöku eft­ir­liti hjá hol­lenskum eft­ir­lits­stofn­unum, og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur sak­fell­ing Ólafs Ólafs­sonar í Hæsta­rétti ekki áhrif á hæfi hans til stjórn­ar­setu hjá Sam­skipum Holding B.V.

Hins vegar segir heim­ild­ar­maður Kjarnans, lög­maður hjá lög­manns­stof­unni CMS í Hollandi, að hol­lenska dóms­mála­ráðu­neytið geti kraf­ist afsagnar stjórn­ar­manna með hlið­sjón af alvar­leika brots­ins sem þeir hafa verið sak­felldir fyrir. Hins vegar sé afar sjald­gæft að ráðu­neytið hafi frum­kvæði að slíku.

Kjarninn leit­aði í dag við­bragða hjá Sam­skipum á Íslandi við fang­els­is­dómnum yfir stærsta eig­anda skipa­fé­lags­ins. Pálmar Óli Magn­ús­son, for­stjóri Samskipa, gaf ekki kost á við­tali og í tölvu­pósti frá Önnu Guðnýju Ara­dóttur, for­stöðu­manni Markaðs- og sam­skipta­deildar Samskipa, til Kjarnans segir: „Við höfum ekk­ert að segja á þessu stigi máls­ins eins og fram kom í sam­tali okkar fyrr í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár