Hæstiréttur: Alvarlegustu efnahagsbrot Íslandssögunnar

Í dómi Hæsta­réttar Íslands þar sem Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafsson, einn stærsti hlut­hafi Kaup­þings, voru sak­felldir fyrir aðild sína að Al-Thani mál­inu svo­kall­aða, er farið hörðum orðum um athæfi hinna dæmdu.

Með dómi sínum stað­festi Hæsti­réttur dóm Hæsta­réttar Reykja­víkur yfir fjór­menn­ing­unum, en auk þess þyngdi Hæsti­réttur fang­els­is­dóma yfir Ólafi og Magnúsi, og mild­aði dóm­inn yfir Sigurði Ein­ars­syni. Ólafur og Magnús voru dæmdir til fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Hæsta­rétti í dag, en Ólafur hlaut þriggja og hálfs árs dóm í Hér­aðs­dómi og Magnús þrjú ár. Þá var fimm ára fang­els­is­dómur Hér­aðs­dóms yfir Sigurði mild­aður um eitt ár.

Engin dæmi um jafn alvarleg efnahagsbrot


Í dómi Hæsta­réttar um ákvörðun refs­ingar segir: „Háttsemi ákærðu sam­kvæmt þessum köflum ákæru fól í sér alvar­legt trún­að­ar­brot gagn­vart stóru almenn­ings­hluta­fé­lagi og leiddi til stór­fellds fjár­tjóns. Brotin sam­kvæmt III. og IV. kafla ákæru beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi í heild og verður tjónið, sem leiddi af þeim beint og óbeint, ekki metið til fjár. Þessi brot voru stórum alvar­legri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot.“

Ofan­greindur III. kafli ákæru sér­staks sak­sókn­ara á hendur fjór­menn­ing­unum laut að meintri mark­aðs­mis­notkun í við­skiptum með hluta­bréf í Kaup­þingi, með því að láta rang­lega líta svo út að þekktur fjár­festir hefði keypt 5,01 pró­sent hluta­fjár í bank­anum. Þá laut IV. kafli ákærunnar að meintri mark­aðs­mis­notkun fjór­menn­ing­anna með því að hafa í frétta­til­kynn­ingu sem birt var á vef Kauhallar Íslands og í fjöl­miðlum gefið mis­vísandi upp­lýs­ingar og vís­bend­ingar um að hluta­bréfa­við­skiptin.

„Kjarninn í hátt­semi ákærðu fólst í þeim brotum, sem III. kafli ákærunnar snýr að, en þau voru þaul­skipu­lögð, drýgð af ein­beittum ásetn­ingi og ein­dæma ófyr­ir­leitni og skeyt­ing­ar­leysi. Öll voru brotin framin í sam­verkn­aði og beindust að mik­il­vægum hags­munum. Verður og að líta til þess að af broti sam­kvæmt III. kafla ákæru hafði ákærði Ólafur óbeina fjár­hags­lega hags­muni gegnum félag, sem eins og fyrr greinir var næst stærsti hlut­haf­inn í Kaup­þingi banka hf. Ákærðu, sem ekki hafa sætt refs­ingu fyrr, eiga sér engar máls­bætur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár