Aðalmeðferð hafin í samráðsmáli Byko og Húsasmiðjunnar

Aðal­með­ferð í máli sér­staks sak­sókn­ara á hendur tólf starfs­mönnum Húsa­smiðj­unnar, Byko og Úlfsins bygg­inga­vara hófst í dóm­sal 101 í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær­morgun. Starfs­menn­irnir eru ákærðir fyrir sam­keppn­islaga­brot vegna meints verð­sam­ráðs á árunum 2010 og 2011. Ákæru sér­staks sak­sókn­ara í mál­inu er hægt að nálg­ast hér.

Rannsókn á meintum brotum starfs­mann­anna hófst í mars 2011 þegar Sam­keppn­is­eft­ir­litið og efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra fram­kvæmdu hús­leitir hjá Byko, Húsa­smiðj­unni og Úlfinum. Málið er gíð­ar­lega umfangs­mikið og skjala­fjöld­inn tæp­lega fimm þús­und blað­síður. Á meðal sönn­un­ar­gagna ákæru­valds­ins í mál­inu eru tölvu­póstar og sím­töl á milli starfs­manna.

Málið var höfðað og þing­fest fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness, þar sem fram fór fyr­ir­taka í mál­inu þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Aðal­með­ferð máls­ins var þá flutt yfir í Hér­aðs­dóm Reykja­víkur vegna fjölda sak­born­inga. Vegna þessa er hvorki minnst á aðal­með­ferð í mál­inu í dag­skrá Hér­aðs­dóms Reykja­ness né Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Aðal­með­ferð­inni var fram­haldið í morgun og stendur hún til hádegis sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Viðbúið er að aðal­með­ferð máls­ins muni ekki ljúka fyrr en í lok næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár