Prins Póló ákvað að gera mjög góða plötu - og það virðist hafa tekist

Í gær var kunn­gjört að hljóm­platan Sorrí með Prins Póló hefði verið til­nefnd til Norrænu tón­list­ar­verð­laun­anna sem besta plata árs­ins 2014. Tólf plötur eru til­nefndar í flokknum, þar af tvær íslenskar en platan Trash From the Boys með íslensku sveit­inni Pink Street Boys hlaut sömu­leiðis til­nefn­ingu. Úrslitin verða kynnt á tón­list­ar­há­tíð­inni By:Larm í Noregi þann 5. mars næst­kom­andi.

Platan Sorrí með Prins Póló topp­aði ófáa árs­lista tón­list­ar­spek­úlant­anna, og hefur almennt hlotið frá­bæra dóma gagn­rýnenda. Frétta­blaðið, Frétta­tím­inn og Reykja­vík Grapevine völdu hana til að mynda sem plötu árs­ins og þá hafn­aði hún í öðru sæti í vali hlust­enda Rásar 2 á plötu árs­ins. Þá hlaut Prins Póló nýverið hlust­enda­verð­laun 365 fyrir lagið París Norð­urs­ins úr sam­nefndri kvik­mynd, þar sem hljóm­sveitin samdi tón­list­ina. Þá hlaut Prins Póló fjórar til­nefn­ingar til Íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna, sem afhent verða 20. febr­úar næst­kom­andi, sem og til­nefn­ingu til Eddu­verð­laun­anna fyrir bestu tón­list í kvik­mynd, fyrir París Norð­urs­ins. Eddu-verð­launa­af­hend­ingin fer fram 21. febr­úar.

Nóg að gera hjá Prins Póló fjölskyldunni


Hljóm­sveit­ina Prins Póló skipa Kristján Freyr Hall­dórs­son, Benedikt Hermann Her­manns­son, Berglind Häsler og prins­inn sjálfur, Svavar Pétur Eysteins­son. Hann býr ásamt eig­in­konu sinni, Berg­lindi Häsler, og þremur börnum á sveita­bænum Karls­stöðum í Berufirði. Þar hefur fjöl­skyldan staðið í ströngu und­an­farna mán­uði við að stand­setja gesta­hús á staðnum sem gisti­heim­ili og breyta fjósi í snakkverk­smiðju þar sem til stendur að fram­leiða gul­rófuflögur. Gisti­heim­ilið er til­búið, og verk­smiðjan er á loka­metr­unum og gengur vel.

[quote font="0" align="right"]Fólkið hérna tal­ast mikið saman og hitt­ist mikið, þannig að við erum í ólg­andi félags­lífi hérna þó við búum á sveitabæ austur í rass­gati.[/quote]

Prins Póló, bónd­inn og rokk­stjarnan, sér fram á anna­saman tíma í febr­úar. „Við verðum svo­lítið að hoppa á milli. Við stöndum í smíða­vinnu á Karls­staða­bænum, og stökkvum svo í bæinn um helgar til að spila, hoppa og híast og taka á móti verð­launum. Það er búið að vera svo­lítið span á okkur,“ segir Svavar Pétur í sam­tali við Kjarnann.

Maður reynir að gera sitt besta frá degi til dags


Það má með sanni segja að Prins Póló verði meira og minna með ham­ar­inn í annarri hendi og raf­mangs­gít­ar­inn í hinni næstu vik­urnar. En hvernig gengur að sam­ræma lífstíl frum­kvöðla­bónd­ans og rokk­stjörn­unar við fjöl­skyldu­lífið og barna­upp­eldið? „Sko, upp­eldið verður nátt­úru­lega bara að koma í ljós þegar fram í sækir, svona hvernig til tókst. En maður reynir bara að gera sitt besta frá degi til dags, og svo finnur maður alltaf á sínu eigin skinni þegar maður sinnir ekki börn­unum eða fjöl­skyld­unni nógu mikið og þá ein­fald­lega tekur maður sig á í því inn á milli. En ann­ars erum við með mjög vel­heppnuð börn og mjög vel­heppn­aða fjöl­skyldu og það hjálp­ast bara allir að og við reynum að hjálpa öðrum á móti til að þakka fyrir okkur.“

[caption id="attachment_19941" align="aligncenter" width="632"] Prinsinn á Karls­stöðum í miðjum jóla­und­ir­bún­ingnum í des­em­ber­mán­uði síð­ast­liðnum.[/caption]

Svavar Pétur segir vel fara um fjöl­skyld­una í Berufirði, og þar sé mikið félags­starf og lif­andi sam­fé­lag þó strjál­býlt sé. „Fólkið hérna tal­ast mikið saman og hitt­ist mikið, þannig að við erum í ólg­andi félags­lífi hérna þó við búum á sveitabæ austur í rass­gati,“ segir Prins Póló og hlær.

Eins og áður segir hefur hljóm­platan Sorrí hlotið nær ein­róma lof gagn­rýnenda frá því að hún kom út á síð­asta ári. Nýjasta við­ur­kenn­ingin sem platan hlýtur er áður­nefnd til­nefn­ing til Norrænu tón­list­ar­verð­laun­anna. Svavar Pétur segir við­tök­urnar við plöt­unni hafa bæði komið sér á óvart og líka ekki. „Við­tök­urnar komu mér mjög mikið á óvart fyrst, en svo fór ég aðeins að hugsa hvort hún ætti að koma mér á óvart. Því að þegar ég byrj­aði að gera þessa plötu í jan­úar 2012 setti ég mér stórt mark­mið að þessi plata yrði mjög góð. Svo kom platan út og ég spáði ekki mikið í hana eftir það, enda hafði ég nóg annað að gera. Svo byrj­aði hún að vekja athygli og fékk þessar við­ur­kenn­ingar í lok árs og þá kom það mér á óvart því ég var búinn að gleyma því að ég að gera mjög góða plötu. En það er gaman að hugsa til þess að maður geti sett sér mark­mið og fengið þessa upp­skeru í kjöl­farið,“ segir Prins Póló í sam­tali við Kjarnann.

*For­síðu­mynd tekin af Baldri Krist­jánsssyni ljós­mynd­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár