Ríkisskattstjóri sótti 1,5 milljarða vegna aflandsfélaga Íslendinga

Á árunum 2011 til 2014 skoð­aði Rík­is­skatt­stjóri mál­efni Íslend­inga sem áttu eða voru með skatta­legar ráð­staf­anir í tengslum við aflands­fé­lög í Lúx­em­borg, meðal ann­ars með það fyrir augum að skatt­leggja arð og sölu­hagnað hluta­bréfa sem runnið höfðu til félag­anna. Skoðun Rík­is­skatt­stjóra leiddi til þess að opin­ber gjöld vegna félag­anna voru hækkuð um rúma 1,5 millj­arða króna.

Samkvæmt skrif­legu svari Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar, rík­is­skatt­stjóra, við fyr­ir­spurn Kjarnans voru níu slík mál tekin til skoð­unar hjá emb­ætt­inu árið 2011, sem leiddi til þess að opin­ber gjöld vegna fimm þeirra voru hækkuð um tæp­lega 41 milljón króna.

Árið 2012 skoð­aði emb­ætti rík­is­skatt­stjóra 57 mál er tengd­ust aflands­fé­lögum Íslend­inga, hjá 32 þeirra voru opin­ber gjöld hækkuð um ríf­lega 325 millj­ónir króna alls. Árið eftir voru 43 mál tekin til skoð­unar, sem skil­aði hækkun á opin­berum gjöldum um ríf­lega millj­arð hjá tólf þeirra.

Fjórtán mál voru tekin til skoð­unar í fyrra, og voru opin­ber gjöld hjá átta þeirra hækkuð um tæp­lega 114 millj­ónir króna í kjöl­farið.

Sam­an­lagt skoð­aði emb­ætti rík­is­skatt­stjóra 123 mál á árunum 2011 til 2014, og var skatt­breytt hjá 57 aðilum fyrir 1.510 millj­ónir króna til hækk­unar á opin­berum gjöldum.

Eins og kunn­ugt er hyggst skatt­rann­sókn­ar­stjóri nú ganga til samn­inga við huldu­mann sem hefur boðið íslenskum stjórn­völdum að kaupa upp­lýs­ingar um eignir Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu eru 150 millj­óna króna verð­miði á upp­lýs­ing­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár