Sveppi hættur hjá 365

Sjón­varps­mað­ur­inn Sverrir Þór Sverr­is­son, betur þekktur sem Sveppi, hefur látið af störfum hjá fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365. Fjöl­miðla­sam­steypan sagði Sveppa upp störfum í lok sum­ars, en hann hefur starfað hjá 365 síðan árið 2002. „Við skiljum í góðu, enda hefur sam­bandið okkar verið afar gott í gegnum tíð­ina,“ segir Sveppi í gam­an­sömum tón í sam­tali við Kjarnann.

Sveppi var kynnir á nýaf­stöðnum hlust­enda­verð­launum FM957 ásamt leikkon­unni Sögu Garð­ars­dóttur, en ein­hverra hluta vegna hefur lítið sést til hans í dag­skrá 365 á und­an­förnum mán­uðum. „Þó ég sé ekki lengur á föstum launum hjá 365, þá verð ég von­andi áfram ráð­inn í tíma­bundin verk­efni hjá fyr­ir­tæk­inu. Nú tekur bara eitt­hvað annað við, en það er ekki þar með sagt að ég birt­ist ekki aftur á Stöð 2 í fram­tíð­inni, enda skoðar maður allar hug­myndir með opnum huga og þá er sama hvort þær koma frá Stöð 2 eða ÍNN, það er auka­at­riði.“

Með mörg járn í eldinum


Sveppi kveðst hafa mörg verk­efni á tak­tein­unum. Hann hyggur á sjón­varps­þátta­fram­leiðslu og kvik­mynda­gerð og er á leið­inni til Úganda. „Við erum að fara saman til Afríku nokkrar íslenskar fjöl­skyldur, sem þátt­tak­endur í hjálp­ar­starfi undir yfir­skrift­inni Act of Kindness. Við Bragi, sem hefur leik­stýrt Sveppa-mynd­unum, ætlum í leið­inni að taka upp litla heim­ilda­mynd um upp­lifun íslensku krakk­anna af heim­sókn­inni til Úganda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár