Sigga Dögg gagnrýnir Toys R Us fyrir barnabrúðarkjól

Kyn­fræð­ing­ur­inn Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir, betur þekkt sem Sigga Dögg, gagn­rýnir leik­fanga­versl­un­ina Toys R Us harð­lega fyrir að aug­lýsa sér­stakan barna­brúð­ar­kjól til sölu fyrir ösku­dag­inn. Kjóllinn er aug­lýstur í bæk­lingi sem leik­fanga­versl­unin sendi frá sér, sem og á heima­síðu Toys R Us.

[caption id="attachment_19792" align="aligncenter" width="686"] Af heima­síðu Toys R Us þar sem kjóll­inn umdeildi er aug­lýstur til sölu.[/caption]

Í færslu sinni á Facebook spyr Sigga Dögg hvort það sé ekki tíma­skekkja að árið 2015 skuli vera fram­leiddur og seldur bún­ingur fyrir stúlkur sem barna­brúðir. „Þessi bæk­lingur frá Toys R Us kom heim til mín nýlega og ég and­varp­aði yfir Spiderman kjólnum (sem og öðrum ofur­hetjum í kjólum, ég meina, hvenær hefur þú séð Batman crossdressa? Ég hlýt að hafa misst af þeirri mynd) en þetta finnst mér ekki í lagi. Litlar stelpur í hvítum kjól því þær ætla ein­hver­tíma að gifta sig ? Er þetta dúllu­legt? Í öðrum heims­hlutum berj­umst við gegn þessu en hér þá klöppum við. Ég á ekki til orð.

Ofur­hetjur bjarga fólki. Brúður fer í förðun, óþægi­legan kjól og von­andi á ágætis fram­tíð með mak­anum sem hún (von­andi) valdi sér sjálf. Það biður eng­inn strákur um að vera brúð­gumi. Og afhverju sjáum við ekki stráka í Frozen kjólum? Nú eða bara til að gæta jafn­ræðis, af hverju er ekki til stráka Frozen bún­ingur með buxum?

Ég er eig­in­lega bara komin með nóg.“

Þá má geta þess að Sigga Dögg gaf nýverið út bók­ina Kjaftað um kyn­líf sem er hand­bók fyrir full­orðna til að ræða um kyn­líf við börn og ung­linga.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár