Huang Nubo hættir við stórtæk jarðakaup í Norður-Noregi

Ekkert verður af fyr­ir­hug­uðum kaupum kín­verska fjár­fest­is­ins Huang Nubo á 100 hekt­ara jörð í Norður-Noregi, að því er fram kemur í frétt norska vef­mið­ils­ins Nord24.

Norskir fjöl­miðlar greindu frá því í maí í fyrra að norski fjár­festir­inn og flug­stjór­inn Oli O.K. Giæver Jr. hefði selt kín­verska auð­kýf­ingnum og kaup­sýslu­mann­inum 100 hekt­ara jörð í Seljevik í Lyngen. Nú er haft eftir norska fjár­fest­inum að ekk­ert hafi orðið af söl­unni og hún muni ekki ganga eftir „á meðan Norðmenn og Kín­verjar leysa ekki úr málum sín á milli.“ Giæver kennir sem sagt slæmum sam­skiptum Noregs og Kína um ákvörðun Huang að draga sig út úr jarða­kaup­unum.

Kína og Noregur hafa eldað grátt silfur saman síðan að norska nóbels­nefndin lagði til árið 2010 að kín­verski and­ófs­mað­ur­inn Liu Xiaobo yrði sæmdur frið­ar­verð­launum Nóbels.

Umdeildur fjárfestir


Aðspurður neitar Giæver að norsk stjórn­völd hafi haft afskipti af við­skipt­unum, en þegar hann var spurður hvort kín­versk stjórn­völd hafi komið í veg fyrir þau svar­aði hann blaðmanni Nord24: „Ég veit það eitt að Kín­verjar ráð­ast ekki í neinar fjár­fest­ingar fyrr en Noregur og Kín­verjar lappa upp á sam­skipti sín á milli.“

[caption id="attachment_19392" align="aligncenter" width="753"] (Frá vinstri) Huang Nubo, Kurt Arild Hansen ráð­gjafi g Ola O.K. Giæver. Norð­menn­irnir heim­sóttu Huang til Peking.[/caption]

Svæðið sem Huang Nubo hugð­ist kaupa í Seljevik er skipu­lagt undir frí­stunda­byggð og leigu­starf­semi sam­kvæmt svæð­is­skipu­lagi Lyngen. Huang hafði uppi áform um að byggja hótel og reka stór­fellda ferða­þjón­ustu á svæð­inu, en fyr­ir­huguð jarða­kaup hans á Íslandi og Sval­barða hafa vakið athygli á heims­vísu. Þá hafa félög Huangs í Kína sætt opin­berri rann­sókn þar í landi vegna umfangs­mik­illa svika­mála sem hefur sömu­leiðis vakið athygli. Kjarninn greindi frá rann­sókn kín­verskra stjórn­valda á félögum Huang í októ­ber.

Miklar væntingar til Huang Nubo


Norski fjár­festir­inn, sem ætl­aði að selja Huang jörð­ina í Seljevik, sem og for­seti bæj­ar­stjórnar í Lyngen höfðu miklar vænt­ingar til áforma Kín­verj­ans á svæð­inu og sögðu í fjöl­miðlum að upp­bygg­ingin yrði mikil lyfti­stöng fyrir Seljevik.

Hug­myndin að við­skipt­unum kvikn­aði eftir að sendi­herra Kína heim­sótti Giæver-fjöl­skyld­una í októ­ber árið 2013. Þá sagði fjár­festir­inn sendi­herr­anum að hann ætti jörð sem búið væri að skipu­leggja og væri til sölu, og þá kom sendi­herr­ann Giæver í sam­band við Huang Nubo.

Seljavik er 3,5 kíló­metra frá Lyngseið­inu (Lyngseidet) og er í eins og hálfs klukku­tíma akst­ur­fjar­lægð frá Tromsø.

[caption id="attachment_19398" align="aligncenter" width="800"] Frá Seljevik.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár