Erfingjar Steingríms Hermannssonar greiði LÍN rúmar 12 milljónir króna

Erf­ingjar Stein­gríms Her­manns­sonar, fyrr­ver­andi for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, það er eft­ir­lif­andi eig­in­kona hans og sex börn Stein­gríms, voru dæmd í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag til að greiða náms­lán eins sona Stein­gríms frá fyrra hjóna­bandi. Á meðal hinna dæmdu er Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar.

Stein­grímur var ábyrgð­ar­maður fyrir náms­lánum sem sonur hans tók hjá LÍN á árunum 1983 til 1987, en sonur hans er yngsta barn Stein­gríms af þremur sem hann eign­að­ist með þáver­andi konu sinni í Banda­ríkj­unum. Krafa Lín vegna náms­láns­ins. hljóð­aði upp á tólf millj­ónir króna.

Stein­grímur lést í febr­úar árið 2010, en mán­uði síðar lenti sonur hans í van­skilum með afborg­anir af lán­inu. Erf­ingjar Stein­gríms fengu hins vegar ekki vit­neskju um að það væri komið í van­skil og hefði verið gjald­fellt í kjöl­farið fyrr en tæpum þremur árum síðar.

Erf­ingjar Stein­gríms vildu að málið yrði látið niður falla þar sem LÍN hefði sýnt af sér stór­brotna van­rækslu með því að til­kynna þeim ekki um stöðu lán­anna, né að þau hefðu verið gjald­felld. Á það féllst Hér­aðs­dómur ekki.

Í dómi Hér­aðs­dóms eru erf­ingjar Stein­gríms Her­manns­sonar dæmdir til að greiða Lána­sjóði íslenskra náms­manna rúmar tólf millj­ónir króna. Sonur Stein­gríms sem fékk náms­lánið greiðir auk þess drátt­ar­vexti af lán­inu síðan 2001, aðrir greiða drátt­ar­vexti frá 10. des­em­ber síð­ast­liðnum.

Í sam­tali við RÚV segir Guð­mundur Stein­gríms­son að hann eigi ekki von á öðru en að dómnum verði áfrýjað til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár