Karolina Fund: Íslensk jarðefni sem skapa hönnunarverk

Eld­fjalla­list er heim­ild­ar­verk er um leir­kera­smíði og hönnun á nytja­list, en einnig hvernig íslensk jarð­efni eru notuð til að skapa hönn­un­ar­verk.

Við heyrðum í G. Helgu Inga­dóttur til að fá að vita meira um verk­efnið.

Getur þú sagt okkur frá verk­efn­inu? Út á hvað gengur það og hvaðan kom hug­myndin?

"Við ákváðum að gera heim­ild­ar­mynd, sem að er kannski ekki hefð­bundin leið, til að kynna okkar list og fjalla um þessa gerð list­greinar, nytja­list og hönnun á henni. Að renna á bekknum er mörg þús­und ára gömul hefð og eins í grunn­inn, nema að núna er notað raf­magn til að knýja bekk­inn í stað­inn fyrir eigið afl. Hins vegar er ekki löng hefð fyrir leir­kera­smíði á Íslandi, þar sem að okkar fyrsti leir­kera­smiður var uppi á síð­ustu öld, Guð­mundur frá Miðdal.Við höfum oft talað um að vinna hluti fyrir sýn­ingu, svona þema af tekötlum, eða vösum – já eitt­hvað þess­háttar, en okkar til­fynn­ing er sú að það þurfi að kynna betur hvað er á bak við hand­verkið. Það er bæði hugsun um form, jafn­vægi, þyngd, sem og útlit á hverjum hlut, já – hönn­unin er ekki til­viljun ein. Hefðin er líka mjög sterk í þessar grein, vissu­lega mis­mun­andi eftir hvaðan hún er, en Þór (Sveins­son, leir­kera­smiður sem vinnur að verk­efn­inu með G. Helgu) er undir miklum áhrifum frá jap­anskri leir­list. Við von­umst til að með til­komu mynd­ar­innar, munum við geta aukið skiln­ing fólks á þessar teg­und listar, því að bolli er ekki bara bolli."

https://vimeo.com/113910372

 

Byrjuðu um aldarmótin


Hafið þið unnið lengi að þessu?

Við höfum unnið saman frá því árið 2000, en Þór er búinn að vera mun lengur í fag­inu og byrjað í kring um 1970. Hann var leir­kera­smiður og hönn­uður í Glit, sem að var starf­andi leir­kera­verk­stæði á sjötta ára­tugnum og fram á þann níunda. Frá 1975 - ´79 var hann með Guðna Erlends­syni í gömlu Eldstó, sem var mjög fram­sækið leir­kera­verk­stæði við Mikla­torg. Guðni rak tvær versl­anir þar sem hand­verkið var selt, Versl­unin Númer 1 í Aðals­stræti og aðra á Laug­ar­veg­inum. Þannig að nafnið var til, en ekki frá­tekið þegar við byrj­uðum í leirnum í kring um alda­mótin 2000. Ég lærði ég svoldið í mynd­list í FB, en einnig fékk ég einka­kennslu hjá list­mál­ara, Gunnari Geir Krist­jáns­syni, frá 12 ára aldri. Ég hef farið á nám­skeið í leir­mótun og gler­unga­gerð, ásamt því að hafa notið góðs af leið­sögn eig­in­manns míns.

Hver er teng­ingin við eld­fjöll?

"Hún er sú að við notum í gler­ung­ana okkar íslensk jarð­efni, sem að hafa orðið til við eld­gos. Annars vegar er það Búð­ar­dals­leir, en yfir 40 miljón tonn eru til af honum og hins vegar Heklu­vikur. 2005 hófum að gera „Eld­fjalla­gler­unga“ í sam­starfi við Bjarn­heiði Jóhanns­dóttur, sér­fræð­ing í efna­fræði gler­unga. Ekki má nota hvaða efni sem er í gler­ung sem kemst í snert­ingu við mat­væli og því var það mik­ill fengur að hafa hana í lið­inu. Eld­fjalla­gler­ungar eru þrón­un­ar­verk­efni og hafa tekið breyt­ingum í áferð og lit á þessum 10 árum. Litirnir minna á hveri, hafið og norð­ur­ljósin og því má segja að Ísland sé sýni­legt í list­mun­unum."

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár