ÖBÍ og Þroskahjálp saka eigendur og stjórn Strætó um sinnuleysi

Lands­sam­tökin Þroska­hjálp og Öryrkja­banda­lag Íslands (ÖBÍ) harma atvikið í gær, þegar þroska­skert átján ára stúlka gleymdis í bíl ferða­þjón­ustu fatl­aðra, þar sem víta­vert gáleysi hafi verið sýnt í starfi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá sam­tök­unum, þar sem stjórn og eig­endur Strætó eru sak­aðir um sinnu­leysi.

„Alvarleg atvik hafa átt sér ítrekað stað og hefur fatlað fólk og hags­muna­sam­tök þeirra margoft bent á hætt­una sem hefur verið yfir­vof­andi hjá ferða­þjón­ust­unni vegna skorts á sam­ráði, reglu­verki og van­hugs­aðri fram­kvæmd. Margt af því sem upp hefur komið hefði verið hægt að koma í veg fyrir ef betur hefði verið staðið að und­ir­bún­ingi og ef tekið hefði verið til­lit til ábend­inga fatl­aðs fólks, þarfa þeirra og þekk­ingar.

Aðgerða er þörf nú þegar og lýsa sam­tökin ein­dregnum vilja til að koma að málum.“

Eins og fram hefur komið stendur til að skipa neyð­ar­stjórn yfir ferða­þjón­ustu fatl­aðra í dag, undir stjórn Stefáns Eiríks­sonar sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, með aðild full­trúa ÖBÍ, Sjálfs­bjargar og Þroska­hjálpar.

Neyð­ar­stjórn­inni verður falið að gera þær nauð­syn­legu breyt­ingar sem þurfa þykir til að gera ferða­þjón­ustu fatl­aðra við­un­andi og þá verður stjórn­inni falið að ráð­ast í sér­staka úttekt á atvik­inu í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár