Hitt húsið brást líka - sérstök úttekt boðuð á máli Ólafar Þorbjargar

Neyð­ar­stjórn, sem til stendur að skipa yfir ferða­þjón­ustu fatl­aðra síðar í dag undir stjórn Stefáns Eiríks­sonar sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, verður falið að ráð­ast í óháða úttekt á aðdrag­anda, inn­leið­ingu og fram­kvæmd ferða­þjón­ustu fatl­aðra hjá Strætó. Þá verður stjórn­inni sömu­leiðis falið að gera sér­staka úttekt á máli Ólafar Þor­bjargar Pét­urs­dóttur, sem gleymd­ist í sex klukku­stundir í bíl frá ferða­þjón­ust­unni í gær.

Hitt húsið klikkaði líka


Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg. Þar harmar borgin atvikið í gær og biður hlut­að­eig­andi afsök­unar. „Ljóst er orðið að mis­tökin lágu ekki aðeins hjá bíl­stjóra ferða­þjón­ust­unnar heldur varð einnig mis­brestur á mót­töku í frí­stund fatl­aðs fólks í Hinu hús­inu og eft­ir­lits­skyldu þess.“

Ólöf Þorbjörg var í hópi fólks sem var á leið í frí­stund hjá Hinu hús­inu klukkan eitt í gær. Það var hins vegar ekki fyrr en þremur klukku­stundum síðar að upp­götv­að­ist að Ólöf hefði ekki skilað sér með hópnum á stað­inn.

Klukkan átta í morgun var haldin fundur með full­trúum Strætó, ÍTR, vel­ferð­ar­sviðs og Hafn­ar­fjarðar þar sem farið var yfir atvikið.

Meg­in­hlut­verk neyð­ar­stjórn­ar­innar, sem til stendur að skipa í dag með aðild full­trúa Öryrkja­banda­lags­ins, Sjálfs­bjargar og Þroska­hjálpar, verður að tryggja örugga og eðli­lega þjón­ustu og fram­kvæmd ferða­þjón­ustu fatl­aðra eins fljótt og kostur er. Stjórnin hefur fullt umboð til að gera þær breyt­ingar sem hún telur nauð­syn­legar til að bæta úr í þjón­ustu og fram­kvæmd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár