Stjórn Strætó hefur ekki rætt um að hætta - fundar með eigendum í dag

Stjórn og eig­endur Strætó, það er sveit­ar­fé­lögin Reykja­vík­ur­borg, Kópa­vogs­bær, Hafn­ar­fjarð­ar­bær, Garðabær, Mos­fells­bær og Sel­tjarn­ar­nes­kaup­staður, ætla að funda í hádeg­inu til að fara yfir atvikið sem kom upp í gær þegar átján ára þroska­skert stúlka gleymd­ist í bíl Ferða­þjón­ustu fatl­aðra í sex klukku­stundir.

Þar stendur til að skipa bráða­birgða­stjórn yfir Ferða­þjón­ustu fatl­aðra undir for­mennsku Stefáns Eiríks­sonar, sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar. Þetta var ákveðið á fundi í morgun, sem Dagur B. Egg­erts­son boð­aði til, en hann sátu meðal ann­ars odd­vitar stjórn­mála­flokk­anna í borg­ar­stjórn ásamt for­manni og vara­for­manni stjórnar Strætó.

„Atburðir gær­dags­ins hjá ferða­þjón­ustu fatl­aðra eru litnir grafal­var­legum augum hjá aðild­ar­sveit­ar­fé­lögum Strætó,“ segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í sam­tali við Kjarnann.

Biður fjölskyldu Ólafar afsökunar


„Þetta er hræði­legt atvik og bara óskilj­an­legt að þetta skyldi hafa komið upp og ég vil biðja fjöl­skyldu Ólafar og hana sjálfa inni­lega afsök­unar,“ segir Kristín Soffía Jóns­dóttir borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og vara­for­maður stjórnar Strætó í sam­tali við Kjarnann. „Nú verður farið yfir alla verk­ferla, skoðað hvernig þetta gat komið upp og komið í veg fyrir að þetta geti gerst aftur. Svo verður skoðað hvort brota­lömin sem virð­ist vera í Ferða­þjón­ustu fatl­aðra sé slík að hún kalli á rót­tækar aðgerðir.“

Bergur Þorri Benja­míns­son, vara­for­maður Sjálfs­bjargar, sagði í fréttum RÚV í morgun að sveit­ar­stjórnir hafi ekki hlustað á við­var­anir fyrir ára­mót um að breyt­ingar á ferða­þjón­ustu fatl­aðra væru ekki nógu vel und­ir­búnar. „Við getum öll sagt að það fór greini­lega eitt­hvað úrskeiðis við inn­leið­ingu á þessum breyt­ingum, en það hefur verið mikið álag á starfs­fólk og ég finn líka til með bíl­stjór­anum. Þetta er hræði­legt óhapp. Við þurfum núna að bregð­ast við og leggj­ast í nafla­skoðun og gera allt sem hægt er til að bæta úr því ástandi sem hefur skap­ast og tryggja að þjón­ustan sé góð fyrir alla og þetta sé við­un­andi starfs­um­hverfi fyrir starfs­fólkið okkar og að við rekum ferða­þjón­ustu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem við getum verið stolt af. Annað er óásætt­an­legt,“ segir Kristín Soffía.

Stjórnin ætlar ekki að stíga til hliðar


Hún segir það ekki hafa komið til tals innan stjórn­ar­innar að hún axli ábyrgð á atvik­inu með því að stíga til hliðar. „Það hefur ekki verið rætt að við förum frá, enda held ég að það væri ekki endi­lega það besta í stöð­unni. Það kom ný stjórn inn í sumar, en þá var vinna við breyt­ingar á ferða­þjón­ust­unni komin af stað. Við lentum í að þurfa að skipta um fram­kvæmda­stjóra á svip­uðum tíma og ég held að það sé bara nauð­syn­legt núna að nú sé fólk í vinnu við að leysa þetta frekar en að við förum í burtu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár