FME þarf ekki að endurgreiða Lýsingu 22 milljónir króna

Hæsti­réttur Íslands stað­festi í gær úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, frá 23. des­em­ber, um frá­vísun á máli sem fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tækið Lýsing höfð­aði á hendur Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME) vegna meintrar ólög­mætrar gjald­töku.

Lýsing krafði FME um end­ur­greiðslu á tæpum 22 millj­ónum króna sem eft­ir­litið gerði Lýsingu að greiða vegna tveggja sér­fræð­inga sem skip­aðir voru í mars og apríl árið 2010 til að hafa sér­tækt eft­ir­lit með rekstri fjár­mögn­ung­ar­fyr­ir­tæk­is­ins.

Umboðsmaður Alþingis gerði athugasemdir við gjaldtökuna


Lýsing byggði kröfu sína á ákvæðum laga um end­ur­greiðslu oftek­inna skatta og gjalda. Þar er meðal ann­ars kveðið á um frum­kvæði stjórn­valda að slíkum end­ur­greiðslum. Í apríl 2011 kvart­aði Lýsing undan ákvörðun FME til umboðs­manns Alþingis í apríl 2011, sem lauk skoðun sinni 27. ágúst 2013. Í nið­ur­stöðu umboðs­manns taldi hann grund­völl gjald­töku FME ófull­nægj­andi og beindi þeim til­mælum til eft­ir­lits­ins að leit­ast yrði við að rétta hlut Lýsingar.

FME krafð­ist frá­vís­unar á mál­inu fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þar sem málið hefði ekki verið höfðað innan til­tek­ins máls­höfð­un­ar­frests sem kveðið er á um í lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi, og í lögum um greiðslu kostn­aðar við opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi. Hér­aðs­dómur tók undir það og vís­aði mál­inu frá eins og áður segir, sem Hæsti­réttur Íslands hefur nú stað­fest.

Segir FME hunsa sjónarmið umboðsmanns


„FME kemur sér hjá því að rétta hlut Lýsingar eins og umboðs­maður Alþingis hafði mælst til að eft­ir­litið gerði vegna ólög­mætra gjalda af þess hálfu og þrátt fyrir ákvæði laga um frum­kvæð­is­skyldu stjórn­valda um að end­ur­greiða borg­urum og lög­að­ilum oftekin gjöld,“ segir Þór Jónsson upp­lýs­inga­full­trúi Lýsingar aðspurður um við­brögð fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins við dómnum. „Í stað þess að fá efn­is­legan dóm um málið, eins og FME lýsti yfir við umboðs­mann að væri til­gang­ur­inn með því að fara með málið fyrir dóm, bar eft­ir­litið fyrir sig máls­höfð­un­ar­fresti. Álit umboðs­manns Alþingis stendur óhaggað eftir sem áður, gjaldið var ólög­mætt. Í til­viki Lýsingar er um að ræða tæp­lega 22 millj­ónir króna, en við­kom­andi stjórn­vald hefur ákveðið að hunsa sjón­ar­mið umboðs­manns.“

Þetta er annað málið sem Lýsing höfðar gegn FME og er vísað frá dómi þar sem lög­mætur máls­höfð­un­ar­frestur er lið­inn. Það mál snérist um ákvörðun FME þar sem Lýsingu var gert að til­kynna öllum við­skipta­vinum sínum með sam­bæri­lega lána­samn­inga um dóm Hæsta­réttar þar sem skil­málar lána­samn­inga Lýsingar voru túlk­aðir þannig að verð­trygg­ing og breyti­legir vextir væri ekki hluti af lána­samn­ingnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár