Stuðningur formanns FSÍ við Náttúrupassann veldur titringi

Í grein sem Ásbjörn Björg­vins­son, for­maður Ferða­mála­sam­taka Íslands (FSÍ), sendi Frétta­blað­inu á föstu­dag­inn til birt­ingar, lýsir hann yfir ein­dregnum stuðn­ingi við Nátt­úrupassa iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Kjarninn hefur grein Ásbjarnar undir höndum, sem hefur enn ekki verið birt, en hún ber fyr­ir­sögn­ina: Nátt­úrupassa: „JÁ TAKK.“ Stjórn­ar­menn í FSÍ eru ósáttir við að sam­tökin séu bendluð við skoð­anir for­manns­ins.

Í grein­inni skrifar Ásbjörn: „Eftir ítar­lega yfir­legu og skoðun á val­kost­unum tel ég að Nátt­úrupass­inn sé sú gjald­töku­leið sem kemst næst því að vera sann­gjörn­ust úr því að aðrar leiðir reyn­ast vand­rataðar eða ófærar út frá ýmsum ástæðum. Það er þegar búið að skerða almanna­rétt­inn þótt núver­andi tilllaga skerði hann enn frekar, við erum alltaf hrædd við breyt­ingar en það sem var er ekki og það sem er verður ekki.“

Óánægja innan stjórnar FSÍ


Ásbjörn hvetur til mál­efna­legrar umræðu um Nátt­úrupass­ann. Í upp­hafi verði aðeins um tíu til tólf ferða­manna­staði að ræða þar sem ein­staka gestir verði krafnir um pass­ann, það er þar sem álagið og aðsóknin er mest. „Aðrir staðir sem sækja um að ger­ast þáttak­endur geta sótt um 100% fram­lag til end­ur­bóta, upp­bygg­ingar og rekst­urs að því gefnu að ekki verði rukkað inn á við­kom­andi staði. Það er því hvati til að ger­ast þáttak­andi í Nátt­úrupass­anum til að fá fram­lög til úrbóta, lag­fær­inga og rekst­urs. Það eru mörg önnur atriði sem ræða má um útfærslu­leiðir en gerum það af ein­hverri sann­girni og án for­dóma fyr­ir­fram. Nú er mál að linni því við verðum að fara að ræða okkur að sam­eig­in­legri lausn því nátt­úran verður að fá for­gang áður en við verðum nátt­úru­laus.“

Undir grein­ina er höf­undur rétti­lega titl­aður sem for­maður Ferða­mála­sam­taka Íslands. Hann hefur áður skrifað grein til stuðn­ings Nátt­úrupass­anum, sem birt­ist 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans olli sú grein tölu­verðum titr­ingi á meðal félags­manna FSÍ.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans gætir óánægju á meðal stjórn­ar­manna FSÍ með að Ásbjörn sé titl­aður sem for­maður sam­tak­anna undir grein­inni, og ótt­ast að afstaða hans verði heim­færð yfir á sam­tökin, en innan þeirra eru mjög skiptar skoð­anir um ágæti Nátt­úrupass­ans.

„Ég fékk alveg fréttir af því að félagar mínir í stjórn­inni, eða alla­vega einn eða tveir sem ég heyrði í, voru ekki sáttir við það að ég not­aði tit­il­inn minn undir grein sem þeir höfðu ekki kvittað upp á. En ég er ekk­ert að tala þarna fyrir hönd Ferða­mála­sam­taka Íslands,“ segir Ásbjörn Björg­vins­son í sam­tali við Kjarnann. „En ég er for­maður sam­tak­anna og ég get ekk­ert neitað því. Ég veit að ég er að róa á móti straumnum með mínum skoð­unum, en ég tel umræð­una um Nátt­úrupass­ann hafa ein­kennst svo­lítið af gíf­ur­yrðum og van­þekk­ingu.“

Ferða­mála­sam­tök Íslands er sam­starfs­vett­vangur átta land­hluta­sam­taka sem vinna að fram­gangi ferða­mála hver á sínu svæði. Stjórn FSÍ sam­þykkti á síð­asta fundi sínum að beina því til stjórna aðild­ar­fé­laga sam­tak­anna að þau verði lögð niður á næsta aðal­fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár