Skorar á Ólaf Ragnar að bjóða sig aftur fram til forseta Íslands

Guð­mundur Franklín Jónsson, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­maður Hægri grænna, hefur stofnað Facebook síðu undir fyr­ir­sögn­inni: Ólafur Ragnar Grímsson for­seta til 2020. Guð­mundur stofn­aði síð­una í morgun, og til þessa hafa 33 ein­stak­lingar lækað síð­una.

Eins og kunn­ugt er situr Ólafur Ragnar Grímsson nú sitt fimmta kjör­tíma­bil í emb­ætti for­seta Íslands. Í frægri ára­móta­ræðu ýjaði for­set­inn að því að hann myndi ef til vill ekki sitja út kjör­tíma­bilið, en í nýlegu við­tali í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni tók hann af allan vafa um það að hann ætlar að sitja út kjör­tíma­bilið sem rennur sitt skeið á næsta ári. Aðspurður um hvort hann hygg­ist bjóða sig fram í sjötta sinn í lok kjör­tíma­bils­ins, en þá mun hann hafa gegnt stöðu for­seta Íslands í tutt­ugu ár, úti­lok­aði Ólafur Ragnar Það ekki.

Ólafur Ragnar besti kosturinn


Guð­mundur Franklín, sem fékk um 18.000 læk á Facebook síðu sem hann stofn­aði um árið þar sem hann hvatti for­set­ann til að sam­þykkja ekki Iceasave-samn­ing­inn, segir til­gang síð­unnar sem hann stofn­aði í dag vera að skora á Ólaf Ragnar að bjóða sig fram einu sinni enn.

„Mér finnst eins og fólk sé búið að afskrifa Ólaf Ragnar, en hann er að sjálf­sögðu ennþá kandídat númer eitt, og er hag­kvæm­asti kost­ur­inn. Að sjálf­sögðu koma margir til greina eins og til dæmis Jón Gnarr, Egill Helgason, Tinna Gunn­laugs­dóttir, Þórarinn Eldjárn og fleiri, sem er allt afbragðs­fólk,“ segir Guð­mundur Franklín í sam­tali við Kjarnann. Aðspurður um hvernig honum lít­ist á Jón Gnarr, sem hefur verið orð­aður við for­seta­fram­boð, svar­aði Guð­mundur: „Mér líst vel á Jón Gnarr, hans tími mun koma.“

Í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum kom í ljós að Guð­mundur var ekki á kjör­skrá á Íslandi og þar með ekki kjör­gengur í kosn­ing­unum. Málið var hið vand­ræða­leg­asta fyrir þáver­andi for­mann Hægri grænna sem segir í sam­tali við Kjarnann að hann sé nú kom­inn á kjör­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár