Karolina Fund: Björt í sumarhúsi

Í febr­úar verður tek­inn til sýn­inga nýr íslenskur söng­leikur fyrir börn, Björt í sum­ar­húsi. Tón­listin er eftir Elínu Gunn­laugs­dóttur við texta Þórarins Eldjárns sem byggir á ljóðum úr bók­inni ,,Gælur, fælur og þvælur”.

Aðstand­endur sýn­ing­ar­innar leita nú eftir aðstoð við að fjár­magna upp­setn­ingu á þessum ein­læga og bráð­skemmti­lega söng­leik.

Við heyrðum í Kristínu Mjöll Jak­obs­dóttur til þess að fá að vita meira um verk­efnið.


Kveikjan textar Þórarins Eldjárns


Segðu okkur frá söng­leiknum Björt í sum­ar­húsi. Hvernig fór þetta verk­efni af stað og hverjir standa að baki því?

"Kveikjan að verk­inu eru textar Þórarins Eldjárns í bók­inni „Gælur, fælur og þvælur“. Elín Gunn­laugs­dóttir tón­skáld samdi fyrir nokkrum árum nokkur lög fyrir barna­kór við texta Þórarins en skömmu síðar bað Pamela De Sensi hana um að semja söng­leik fyrir tón­leika­röð Töfra­hurðar. Þá bað Elín Þórarin um leyfi til að nota text­ana í söng­leik­inn og fékk hann til að skrifa hand­rit. Kristín Mjöll Jak­obs­dóttir fyrir hönd Óperarctic félags­ins tók svo að sér það verk­efni að beiðni Elínar að verða með­fram­leið­andi ásamt Töfra­hurð að söng­leiknum.

Und­ir­bún­ingur og fjár­mögnun hefur nú staðið á annað ár en styrk­veit­ingar Reykja­vík­ur­borgar og Barna­vina­fé­lags­ins Sum­ar­gjafar á síð­asta ári gerðu það kleift að hefj­ast handa við að und­ir­búa upp­setn­ingu verks­ins. Söng­leik­ur­inn komst síðan á dag­skrá tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Myrkir mús­ík­dagar 2015 vegna sam­starfs hátíð­ar­innar við Töfra­hurð og þá var kom­inn frum­sýn­ing­ar­dagur 1.febr­úar.

Síð­ast­liðið sumar var valið end­an­lega í hlut­verk, Ágústa Skúla­dóttir fengin til að leik­stýra og efnt til prufu­söngs fyrir Björt í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Nafn söng­leiks­ins varð til stuttu áður sem leikur að orðum en fram að því hafði söng­leik­ur­inn borið vinnu­heiti í höfuð á bók­inni.

Mik­il­vægt er að sýn­ing sem þessi eigi sér fram­halds­líf og í lok nóv­em­ber komst Björt í sum­ar­húsi að í Tjarn­ar­bíói og hefj­ast sýn­ingar 14. febr­úar. Mark­miðið er að gera sýn­ing­una þannig úr garði að hana megi auð­veld­lega sýna um land allt og í skólum."

Björt leiðist og gerist æ óþægari


Hver er hugs­unin að baki söng­leiknum? Eru þið með skila­boð til sam­fé­lags­ins?

"Sagan segir frá Björt í pössun hjá afa sínum og ömmu í sum­ar­bú­stað en þar er ekk­ert raf­magn og lítið við að vera. Afinn og amman reyna að hafa ofan af fyrir Björt sem leið­ist og ger­ist æ óþæg­ari. Glói gull­fiskur, fiski­fluga, dúða­durtur og margir fleiri koma við sögu en að lokum finn­ast bækur í bústaðnum og Björt kemst í ró.

Verkið er eins konar óður til sköp­un­ar­innar. Þegar okkur leið­ist förum við að finna okkur eitt­hvað skemmti­legt að gera, að skapa eitt­hvað. Boð­skapur text­ans er meðal ann­ars að fá börn til að hug­leiða gildi bók­ar­innar og þess tíma áður en nútíma­tæki á borð við sjón­varp og snjall­síma hófu inn­reið sína. Textinn er kjarn­yrtur, býr yfir miklum orða­forða en er jafn­framt fynd­inn og skemmti­legur. Söng­leik­ur­inn kemur til skila skáld­skap­ar­gáfu Þórarins og valdi hans á íslenskri tungu á nýjan og skemmti­legan hátt.

Það er afar þrosk­andi fyrir börn að upp­lifa ólík list­form, sér­stak­lega á sínu eigin tungu­máli og umhverfi sem þau geta tengt við. Bæði Töfra­hurð og Óperarctic félagið hafa lagt metnað sinn í að bjóða upp á metn­að­ar­fullar tón­leik­hús­sýn­ingar fyrir börn en fá slík verk hafa verið samin af íslenskum höf­undum og enn færri kom­ist á svið. Íslensk frum­samin söng- og leik­hús­verk standa höllum fæti vegna þess hversu dýr þau eru í fram­leiðslu en það hefur reynst erfitt að fjár­magna slík verk með fé úr sjóðum hins opin­bera sem þó er ætlað að styrkja slík verk­efni. Þetta á við verk­efni jafnt fyrir börn sem full­orðna."

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár