Hæstiréttur staðfesti sýknudóm og skammaði saksóknara fyrir tafir

Hæsti­réttur Íslands stað­festi í dag sýknu­dóm Hér­aðs­dóms Aust­ur­lands yfir lög­reglu­manni sem ákærður var fyrir vörslu barnakláms. Í dómnum er ákæru­valdið gagn­rýnt fyrir óþarfa seina­gang í mál­inu.

Ellefu mynd­skeið sem sýndu börn á kyn­ferð­is­legan og klám­feng­inn hátt fund­ust á uta­n­áliggj­andi hörðum disk í eigu lög­reglu­manns­ins sem hald­lagður var við hús­leit sem fram­kvæmd var á heim­ili hans í októ­ber árið 2012, í kjöl­far kæru á hendur honum þar sem hann var sak­aður um kyn­ferð­is­brot gegn barni. Rannsókn þess máls leiddi hins vegar ekki til ákæru.

Vildi aldrei kannast við myndskeiðin


Mynd­skeiðin sem um ræðir fund­ust í sér­stakri möppu sem bar heitið „Young“ en á tölvu­disk ákærða var að finna mikið magn klám­efnis. Maðurinn neit­aði ávallt að hafa haft vit­neskju um efnið, það hafi slæðst með öðru klám­efni sem hann hafi nið­ur­halað af tor­rent-síð­unni The Pirate Bay. Auk harða disks­ins lagði lög­regla hald á þrjár tölvur sem fund­ust á heim­ili manns­ins.

Hér­aðs­dómur mat vitn­is­burð ákærða trú­verð­ugan og taldi að ákæru­valdið hefði ekki tek­ist að sanna að um ásetn­ing hafi verið að ræða og sýkn­aði því lög­reglu­mann­inn af ákæru um vörslu barnakláms.

Sýknu­dóm­ur­inn í hér­aðs­dómi var kveð­inn upp 20. des­em­ber árið 2013, en ákæru­valdið áfrýj­aði nið­ur­stöð­unni til Hæsta­réttar þann 3. jan­úar 2014. Tæpum níu mán­uðum síðar, eða þann 23. sept­em­ber 2014, krafð­ist ákæru­valdið að dóm­kvaddur yrði sér­fróður maður til að svara ákveðnum spurn­ingum er vörð­uðu mynd­skeiðin ell­efu.

Engar vísbendingar um að myndskeiðin hafi verið opnuð


Á meðal þeirra spurn­inga sem dóm­kvadda mats­mann­inum var ætlað að svara var hvort skrárnar hefðu ein­hvern tím­ann verið opn­aðar, það er spil­aðar, á fyrr­greindum hörðum diski. Í svari mats­manns­ins kemur fram að ekki hafi fund­ist vís­bend­ingar á tölvu­disknum né tölvunum þremur sem hald­lagðar voru á heim­ili hins ákærða um að skrárnar hefðu verið opn­aðar.

Hæsta­rétti þótti vitn­is­burður mats­manns­ins renna enn frek­ari stoðum undir sýknu­dóm hér­aðs­dóms, að mað­ur­inn hafi ekki náð sér í barnaklámið af ásetn­ingi. Þá segir í dómi Hæsta­réttar: „Eins og áður greinir var þess kraf­ist af hálfu ákæru­valds­ins 23. sept­em­ber 2014 að dóm­kvaddur yrði mats­maður og hefur sú töf sem á því varð ekki verið skýrð. Þessi óþarfa dráttur á með­ferð máls­ins fyrir Hæsta­rétti er aðfinnslu­verður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár