SVÞ segja að tollvernd á Íslandi sé farin að snúast upp í andhverfu sína

Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu (SVÞ) og Lárus M. K. Ólafsson, lög­maður sam­tak­anna, rita grein í Frétta­blaðið í dag undir fyr­ir­sögn­inni „Sviðin toll­vernd.“

Þar vekja tví­menn­ing­arnir athygli á því að inn­lendir fram­leið­endur séu orðnir uppi­skroppa með hin þjóð­legu svið, og það á sjálfum þorr­anum. Samkvæmt grein­inni má rekja skort­inn, meðal ann­ars til þess að að inn­lendir fram­leið­endur séu farnir að herja á erlenda mark­aði með íslensku sviðin. „Ástand þetta er enn ein áminn­ingin um á hvaða enda­stöð inn­flutn­ings­tak­mark­anir á land­bún­að­ar­vörum eru komnar,“ segir í grein­inni.

Eins og kunn­ugt er hafa SVÞ lengi barist fyrir umbótum varð­andi inn­flutn­ing á land­bún­að­ar­vörum. Í við­leitni sinni hafa sam­tökin meðal ann­ars leitað til umboðs­manns Alþingis, dóm­stóla og Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu í októ­ber að núg­gild­andi lög­gjöf á Íslandi varð­andi inn­flutn­ing á fersku kjöti brjóti í bága við EES-samn­ing­inn.

Ríkisstyrkt framleiðsla í þágu erlendra neytenda


Í grein­inni fagna SVÞ að inn­lendir fram­leið­endur söðli um á erlendum mörk­uðum. „Hins vegar svíður það að slík fram­ganga sé á kostnað inn­lendra neyt­enda og versl­ana og að inn­lend fram­leiðsla, sem styrkt er af skattfé og fram­leidd í full­komnu skjóli toll­verndar, standi ekki inn­lendum neyt­endum til boða.“

SVÞ segja að rök rík­is­ins fyrir við­var­andi toll­vernd og inn­flutn­ings­tak­mörk­unum hafi ávallt verið að með þeim sé verið að styðja við inn­lenda fram­leiðslu og tryggja fram­boð til inn­lendra neyt­enda.

„Það kann því að skjóta skökku við að sú toll­vernd sé farin að snú­ast upp í and­hverfu sína á þá vegu að verndin sé til þess fallin að tryggja fram­leiðslu hér á landi fyrir erlenda neyt­endur. Með öðrum orðum er hin rík­is­styrkta fram­leiðsla í þágu erlendra mat­gæð­inga,“ segir í grein­inni.

Að end­ingu skora SVÞ á Sigurð Inga Jóhanns­son land­bún­að­ar­ráð­herra að taka til­lit til gagn­rýni sam­tak­anna um ágalla á núver­andi toll­kvóta­kerfi, og hann tryggi inn­lendri fram­leiðslu aukið aðhald með inn­flutn­ingi á land­bún­að­ar­vörum án þess að hann sé und­ir­orp­inn him­in­háum tollam­úrum og óyf­ir­stíg­an­legum inn­flutn­ings­hömlum. „Síðast en ekki síst skora SVÞ á land­bún­að­ar­ráð­herra að taka af skarið og tryggja íslenskum neyt­endum aukið vöru­úr­val á land­bún­að­ar­vörum á lægra verði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár