Sigríður Björk hyggst afhenda Persónuvernd tölvupóst um Omos

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hyggst afhenda Per­sónu­vernd tölvu­póst sem hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þann 20. nóv­em­ber 2013, sem inni­hélt grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Sigríður Björk sendi völdum fjöl­miðlum í dag, en Kjarn­anum var ekki send yfir­lýs­ingin fyrr en hann óskaði sér­stak­lega eftir henni.

Þá segir Sigríður Björk að frétt Kjarnans um að umræddur tölvu­póstur finn­ist hvorki hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu né lög­reglu­stjóra­emb­ætt­inu á Suð­ur­nesjum, eigi ekki við rök að styðj­ast.

Í yfir­lýs­ing­unni segir: „Tölvu­póstur með grein­ar­gerð sem þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum sendi þáver­andi aðstoð­ar­manni inn­an­rík­is­ráð­herra 20. nóv­em­ber 2013, er vistaður á póst­þjóni lög­regl­unnar. Tölvu­póst­ur­inn verður meðal þeirra gagna sem und­ir­rituð afhendir Per­sónu­vernd eigi síðar en nk. föstu­dag, 30. jan­úar.“

Kjarninn stendur við frétt­ina frá því í dag. Þar kom jafn­framt fram að Sigríður Björk hafi óskað eftir lengri frest til að afhenda umræddan tölvu­póst, en frestur sem Per­sónu­vernd gaf henni til þess átti að renna út í dag. Per­sónu­vernd álítur tölvu­póst­inn sem lyk­il­gagn við rann­sókn sína á sam­skiptum Sigríðar Bjarkar og Gísla Freys.

Kjarninn sendi Sigríði Björk fyr­ir­spurn þar sem hún var spurð af hverju hún hafi óskað eftir lengri frest til að skila Per­sónu­vernd umbeðnum gögnum, og hvaða fleiri gögn hún hygg­ist afhenda stofn­un­inni eigi síðar en á föstu­dag­inn. Í skrif­legu svari Sigríðar segir: „Ástæðan fyrir frest­inum var sú að ég ræddi við Þórð Sveins­son hjá Per­sónu­vernd í morgun, til að kanna hvort hann vildi fá tölvu­póst­sam­skiptin á útprent­uðu formi eða raf­rænu. Í sam­tal­inu vökn­uðu spurn­ingar varð­andi tækni­lega til­högun sem ég þarf að afla nán­ari upp­lýs­inga um og því fékk ég frest­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár