Karolina Fund: Hamfaraleikrit fyrir börn

Pétur Eggerz og Mögu­leik­húsið ætla að setja á svið leik­sýn­ing­una Eld­barnið í Tjarn­ar­bíói í febr­úar. Til þess að af sýn­ing­unni geti orðið hafa þau ákveðið að stofna til fjár­öfl­unar á Karolina Fund.

Hér heldur Mögu­leik­húsið áfram umfjöllun um mann­líf í kjöl­far Skaft­ár­elda og Móðu­harð­inda, en síð­asta vetur frum­sýndi það ein­leik­inn Eld­klerk­inn sem hlaut afburða­góðar við­tökur. Að þessu sinni eru atburð­irnir skoð­aðir frá sjón­ar­hóli ungrar stúlku í nýju barna­leik­riti sem ætlað er áhorf­endum frá 9 ára aldri.

Við tókum Pétur tali.

Ætlaði að verða fuglafræðingur


Segðu mér aðeins frá þér per­sónu­lega og frá Mögu­leik­hús­inu?

„Ég upp­al­inn í Breið­holt­inu, ætl­aði mér upp­haf­lega að verða fugla­fræð­ingur en þvæld­ist síðan út í leik­list á ung­lings­árum og hefur haldið mig þar síðan. Eftir við­komu í bók­mennta­fræði í Háskóla Íslands fór ég í leik­list­ar­skóla í London og hef komið víða við frá því ég kom þaðan. Mögu­leik­húsið stofn­aði ég ásamt félögum mínum á vor­mán­uðum 1990, en leik­húsið hefur starfað sam­fellt síðan og fagnar því ald­ar­fjórð­ungs­af­mæli í ár. Frá upp­hafi hefur Mögu­leik­húsið lagt höf­uð­á­herslu á að frum­sýna ný íslensk verk fyrir unga áhorf­endur."

[caption id="attachment_17984" align="alignnone" width="800"] Mögu­leik­húsið. [/caption]

Getur þú sagt mér frá aðdrag­anda þess að þið ákváðuð að setja þessa sýn­ingu upp? Er hún hluti af stærra verk­efni eða á hún sér for­sögu hjá ykkar leik­hóp?

„Aðdrag­and­inn er nokkuð langur og má senni­lega rekja allt aftur til þess að ég var á sínum tíma sendur í sveit í Með­al­landið á bæ sem stendur við jaðar Skaft­ár­elda­hrauns­ins. Allt frá þeim tíma hefur mér verið saga þess­ara miklu atburða í Íslands­sög­unni mjög hug­leikin. Það er þó eins og við höfum svo­lítið viljað gleyma þessum hluta sög­unnar og þeim áhrifum sem þessar miklu ham­farir höfðu á þjóð­ina. Því kvikn­aði sú hug­mynd hjá okkur fyrir all­nokkrum árum að áhuga­vert væri að gera þessu tíma­bili skil í leik­verki fyrir unga áhorf­endur. Þegar við fórum að grúska í efn­inu fór það hins­vegar svo að úr þessu spruttu tvö verk sem kalla má eins­konar tví­leik. Fyrra verkið var ein­leik­ur­inn Eld­klerk­ur­inn sem við frum­sýndum fyrir rúmu ári síðan. Í því verki segjum við sögu séra Jóns Stein­gríms­sonar og Skaft­ár­elda, en byggjum að mestu á skrifum Jóns sjálfs, Ævisögu hans og Eldriti. Eld­klerk­ur­inn er verk sem fyrst og fremst er ætlað full­orðnum, en eftir frum­sýn­ingu á því var komið að því að vinna barna­leik­rit sem gerð­ist á tímum Skaft­ár­elda. Útkoman úr þeirri vinnu er Eld­barnið sem við frum­sýnum í Tjarn­ar­bíói 7. febr­úar."

Gerist á tímum Skaftárelda


Þessi saga er stór­merki­leg. Er þetta byggt á sannri sögu. Getur þú kannski farið aðeins yfir sög­una?

„Eld­barnið er skáld­verk sem ger­ist á tímum Skaft­ár­elda, nánar til­tekið á árunum 1783-1784. Við segjum sög­una af ungri stúlku, Sólveigu, sem býr austur á Síðu í Vestur –Skafta­fells­sýslu. Þegar Skaft­ár­eldar hefj­ast fer bær­inn hennar undir hraun og hún hrekst á flótta ásamt móður sinni. Við tekur ævin­týra­leg atburða­rás þar sem ver­öldin öll hefur umturn­ast og Sólveig þarf að læra að bjarga sér í heimi þar sem hætt­urnar virð­ast leyn­ast við hvert fót­mál. En hug­rekki og hjarta­hlýja reyn­ast tryggir föru­nautar á þessum óvissu­tímum.

Þó sagan sjálf sé skáld­verk þá ger­ist hún í sögu­legu umhverfi þar sem nafn­greindir ein­stak­lingar úr raun­veru­leika þess tíma koma við sögu og raun­veru­legir atburðir flétt­ast inn í sög­una. Þannig lendir Sólveig t.d. í eld­messu séra Jóns Stein­gríms­sonar á Kirkju­bæj­ar­klaustri þar sem straum­hvörf verða í lífi hennar. Þá byggir sagan einnig á upp­lýs­ingum um hvernig atburða­rásin varð­andi eld­gosið var á því tæpa ári sem sagan spannar og eins höfðum við til hlið­sjónar frá­sagnir af þeim veru­leika sem fólk í hinum svo­nefndu Eldsveitum þurfti að glíma við. Þetta er því saga sem í raun hefði getað gerst á þessum tíma.

Þá er einnig áhuga­verð teng­ing sem hefur komið upp nú í vetur eftir að eld­gosið hófst norðan Vatna­jök­uls þar sem við fáum smjör­þef­inn af ýmsu því sem dundi á lands­mönnum í Skaft­ár­eldum, þó bless­un­ar­lega séu áhrif goss­ins fyrir norðan ekki nema brot af því sem fólk kynnt­ist í Móðu­harð­ind­unum. En það er von okkar að leik­ritið veki áhuga yngri kyn­slóða á þessum hluta sögu okkar um leið og það veki til umhugs­unar um eðli þessa lands sem við byggjum og mik­il­vægi þess að við umgöng­umst það af virð­ingu og auð­mýkt."

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár