Finn tvíburasystur mína oft á sófanum heima

Hrafn­hildur Ólafs­dóttir segir leik­skóla­starfið hafa mótað sig mest.

Ég held það sé í raun alltaf mikil breyt­ing að flytja í fyrsta sinn af æsku­heim­il­inu. Sér­stak­lega fyrir mig þar sem ég hef nán­ast sofið til fóta hjá tví­bura­systur minni frá því ég fædd­ist. Það eru líka ákveðin við­brigði að flytja í annað hverfi. Nú labba ég til dæmis í vinn­una, keyri nán­ast ekki neitt og kaupi minn eigin kló­sett­pappír. Það er svona mesta breyt­ingin við að flytja að heiman, en þrátt fyrir það finn ég tví­bura­systur mína oft á sóf­anum heima hjá mér. Annað sem hefur mótað mig einna mest á lífs­leið­inni er að hafa starfað á leik­skóla. Ef það væri launað eins og að vinna á veit­inga­stað þá væri ég eflaust ennþá í því. Mér fannst það alveg sjúk­lega gef­andi og skemmti­legt starf. Sér­stak­lega sem dóttir leik­skóla­kenn­ara, þá fannst mér það ótrú­lega leið­in­legt að þurfa fara úr starfi bara vegna þess að mig lang­aði að kaupa mér íbúð, en ekki af því því mér fannst starfið leið­in­legt eða ég hefði ekki áhuga á því. Það er eitt­hvað sem mér finnst að allir ættu að taka til sín. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár