Borgarstjóri: „Sat hjá því ég þekki til Gústafs og málflutnings hans“

Fimm borg­ar­full­trúar sátu hjá við kosn­ingu Gústafs Níels­sonar sem vara­manns í Mann­réttinda­ráð Reykja­vík­ur­borgar í gær. Þeirra á meðal var Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri, en auk hans sátu borg­ar­full­r­tú­arnir Sóley Tóm­as­dóttir, Skúli Helgason, Heiða Björg Hilm­is­dóttir og Halldór Auðar Svansson hjá við kosn­ingu Gústafs.

Ákvörðun odd­vita Fram­sóknar og flug­valla­vina, Svein­björgu Birnu Svein­björns­dóttir, að skipa Gústaf sem vara­mann í ráðið vakti hörð við­brögð og þá ekki síst á meðal for­kólfa innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra voru á meðal þeirra sem gagn­rýndu skip­un­ina mjög og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­rá­herra sagði hana „mis­tök.“ Gústaf hefur meðal ann­ars barist gegn hjóna­böndum sam­kyn­hneigðra og bygg­ingu mosku í Reykja­vík. Svo hörð við­brögð vakti skipun hans að hún var dregin til baka í dag.

Fóru gegn ríkjandi hefð


Samkvæmt hefð kjósa allir borg­ar­full­trúar með þeim full­trúum sem borg­ar­stjórn­ar­flokk­arnir til­nefna í hinar ýmsu nefndir borg­ar­innar hverju sinni. Til marks um það hlutu sex full­trúar fram­boð­anna sam­hljóða kosn­ingu á fundi borg­ar­stjórnar í gær, eða allir nema Gústaf. Eins og áður segir sátu fimm borg­ar­full­trúar hjá við kosn­ing­una á Gústaf, og fóru þeir því gegn ríkj­andi hefð með afstöðu sinni. Aðrir borg­ar­full­trúar kusu með skipun Gústafs, og var hann því kjörin með tíu atkvæðum.

„Ég sat hjá vegna þess að ég þekki til Gústafs og mál­flutn­ings hans. Ég veit að það voru ekki allir sem þekktu til þess þar sem borg­ar­full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins höfðu ekki til­kynnt um það fyr­ir­fram. Til­nefn­ing í þetta vara­manns sæti var auð­vitað ein­ungis á ábyrgð Fram­sókn­ar­flokks­ins. Það er nán­ast óskrifuð regla að virða til­nefn­ingar flokka í kosn­ingum í nefndir og ráð, og ein­hverjir hafa ef til vill greitt atkvæði með skip­an­inni út frá þeirri reglu, þrátt fyrir að þekkja til Gústafs. Ég held að ábyrgð Fram­sókn­ar­flokks­ins hljóti að vera lyk­il­at­riðið í mál­inu, og því mik­il­vægt að flokk­ur­inn hefur dregið skip­an­ina til baka. Ég man ekki eftir styttri vara­manns­ferli í borg­ar­stjórn,“ segir Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri í sam­tali við Kjarnann.

Aðspurður um aft­ur­köllun á skipun Gústafs, svar­aði Dagur: „Ég er mjög feg­inn að þetta hafi orðið nið­ur­staðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár