„Þau skilja að sum okkar eru öfugsnúin og afbrigðileg“

Gústaf Níelsson, nýskip­aður vara­maður Fram­sóknar og flug­valla­vina í Mann­réttinda­ráði Reykja­víkur, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið árið 2005, undir fyr­ir­sögn­inni Að elska sitt eigið kyn, þar sem hann for­dæmdi laga­frum­varp sem gerði sam­kyn­hneigðum kleift að ætt­leiða börn og ganga í hjóna­band.

Skipunin hefur vakið hörð við­brögð og ekki síst innan Fram­sókn­ar­flokks­ins en á meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt skip­un­ina eru Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra, Jóhanna María Sig­munds­dóttir þing­maður og Birkir Jón Jónsson odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kópavogi.

Sagði samkynhneigð óeðlilega


Í áður­nefndri grein skrifar Gústaf Níelsson, sem er sagn­fræð­ingur að mennt: „Er það ekki hámark sjálfselsk­unnar að leggja ást á sitt eigið kyn, og slík ást getur aldrei borið ávöxt. En úr því að sú nöt­ur­lega stað­reynd blasir við, er rétt­ast að gera þá kröfu á ríkið að börn séu til útdeil­ingar handa hommum og les­b­íum í hjóna­bandi - í jafn­rétt­is­skyni. Þá er auð­vitað eng­inn að huga að þeim sjálf­sögðu mann­rétt­indum barna, að eiga bæði föður og móður, sem öll börn jú eiga, því ekk­ert barn verður til nema fyrir til­verknað sæðis karls og eggs konu. Ég geri ráð fyrir því að umboðs­maður barna hafi ein­hverja rök­studda skoðun á þessu, eða eru sjón­ar­mið hans óþörf í mann­rétt­inda- og jafn­rétt­is­bar­áttu homma og lesbía?“

Í grein­inni gengur Gústaf svo langt að kalla sam­kyn­hneigð afbrigði­lega. „Það hefur löngum verið þekkt að sumt fólk leggur ást á sitt eigið kyn, en það er ekki þar með sagt að slík hátt­semi sé eðli­leg, heldur þvert á móti. En hin kristnu sam­fé­lög Vest­ur­landa eru frjáls­lynd og umburð­ar­lynd. Þau skilja að sum okkar eru öfug­snúin og afbrigði­leg og láta refsi­laust í dag, enda kær­leiks­boð­skap­ur­inn grunn­tónn í trúnni. En fyrr má nú rota en dauð­rota, það var aldrei mein­ingin að leiða hið afbrigði­lega og ófrjóa til önd­vegis.“

Gústaf segir í grein­inni að íslenskt sam­fé­lag hafi á und­an­förnum árum komið veru­lega til móts við sam­kyn­hneigða. Laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar feli í sér marg­hátt­aðar rétt­ar­bætur, sem margir geti fall­ist á. „En mörkin hljótum við að draga við frumætt­leið­ingu (með hlið­sjón af mann­rétt­indum barna) og gift­ingu í kirkjum lands­ins. Sam­kyn­hneigðir geta mér að meina­lausu stofnað sína sér­kirkju og iðkað þar sína homma- og les­b­íuguð­fræði og lagað hana að sínum hug­mynda­heimi. En á því er eng­inn áhugi, vegna þess að það á að kné­setja þjóð­kirkj­una með góðu eða illu, en kljúfa hana ella.“









Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár