Íbúðalánasjóður á nítján hundruð íbúðir - ríflega 900 þeirra eru í söluferli

Íbúða­lána­sjóður átti 1.894 íbúðir víðs vegar um landið í lok árs 2014, að því er fram kemur í skrif­legu svari Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Stein­unnar Þóru Árna­dóttur þing­manns Vinstri grænna. Svarið var lagt fyrir á Alþingi í dag.

Lang­flestar íbúð­irnar eru á Suð­ur­nesjum, eða 781 íbúð, en sjóð­ur­inn á 341 íbúð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 219 íbúðir á Suð­ur­landi. Samkvæmt svari hús­næð­is­mála­ráð­herra eru 916 íbúð­anna í sölu­með­ferð hjá fast­eigna­sölum um land allt, og 889 íbúðir eru nú þegar í útleigu. Þá er unnið að þrifum, hreinsun og skrán­ingu á 68 íbúðum sjóðs­ins til að koma þeim í sölu, og 21 íbúð er á leið á leigu­markað.

[caption id="attachment_17575" align="aligncenter" width="763"] Úr skrif­legu svari hús­næð­is­mála­ráð­herra.[/caption]

Nær allar íbúðirnar í umsjá Kletts í útleigu


Leigu­fé­lagið Klettur, sem er dótt­ur­fé­lag Íbúða­lána­sjóðs, ann­ast rekstur 450 eigna í eigu sjóðs­ins og ekki hefur verið tekin ákvörðun um að færa fleiri eignir til félags­ins, sam­kvæmt svari ráð­herra. Þar af eru 433 íbúðir í útleigu. Flestar íbúðir Kletts er að finna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 161 íbúð, og þá ann­ast leigu­fé­lagið rekstur 75 íbúða á Suð­ur­nesjum, sem allar eru í útleigu enda mikil eft­ir­spurn eftir hús­næði í sveit­ar­fé­lag­inu.

Eins og áður segir er eign­ar­hald Kletts í höndum Íbúða­lána­sjóðs og ákveðið hefur verið að fjár­mögnun félags­ins verði af hálfu sjóðs­ins, sam­kvæmt svari ráð­herra. Fjár­mögn­un­ar­ferlið hefur verið til­kynnt til ESA, eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, en þaðan hafa engin svör borist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár