Vill fá að vita kostnað við framkvæmd og kynningu „Leiðréttingarinnar“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, lagði fram fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, á Alþingi í dag um áætl­aðan kostnað við fram­kvæmd og kynn­ingu á skulda­nið­ur­færslu verð­tryggðra fas­geigna­veð­lána, eða „Leið­rétt­ing­ar­innar“ svoköll­uðu.

Í fyr­ir­spurn­inni er óskað eftir sund­ur­liðun á öllum kostn­aði við sku­da­nið­ur­færsl­una sem ekki er veitt til fram­telj­enda sjálfra, og hversu stór hluti kostn­að­ar­ins er vegna kynn­ingar og almanna­tengsla í tengslum við nið­ur­færsl­una.

Blésu til sýningar


Nið­ur­staða „Leið­rétt­ing­ar­innar“ var kynnt á við­hafn­ar­fundi í Hörpu mánu­dag­inn 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Hægt var að fylgj­ast með fund­inum í beinni útsend­ingu á vefnum, en almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM kom að fram­kvæmd kynn­ing­ar­innar. Á henni héldu Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra tölu áður en Halldór Benjamín Þor­bergs­son, hag­fræð­ingur, sem starfar sem fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar hjá Icelandair Group, stýrði hálf­tíma langri kynn­ingu á skulda­nið­ur­færsl­unni.

Halldór Benjamín var feng­inn til að útbúa og stýra kynn­ing­unni fyrir til­stuðlan Tryggva Þórs Her­berts­sonar, verk­efna­stjórna „Leið­rétt­ing­ar­innar.“ Þeir störf­uðu á árum áður saman innan Milestone- sam­steypunnar þar sem Tryggvi Þór var for­stjóri fjár­fest­inga­bank­ans Askar Capital um stutt skeið og Halldór Benjamín var verk­efna­stjóri hjá Milestone.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár