Björgvin G. á leið í áfengismeðferð - tekur ekki við ritstjórastöðu

Björgvin G. Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og sveit­ar­stjóri Ása­hrepps, hefur ákveðið að leita sér með­ferðar vegna áfeng­is­neyslu og tekur ekki við starfi rit­stjóra Herðu­breiðar eins og til­kynnt hafði verið um. Þetta kemur fram á vef­miðl­inum Herðu­breið.

Í við­tali við vef­mið­il­inn seg­ist Björgvin þurfa að líta í eigin barm.

„Hluta þess sem nú er orðið að frétta­efni má vita­skuld rekja til dóm­greind­ar­brests sem stafar án efa af við­var­andi og óhóf­legri áfeng­is­neyslu um nokk­urra miss­era skeið. Ég hafði ákveðið að leita aðstoðar á göngu­deild þar sem ég hafði óskað eftir með­ferð og hugð­ist sinna vinnu með­fram því, en eftir áföll síð­ustu daga er mér ljóst að ég þarf meiri hjálpar við.

Ég hef því ákveðið að leita mér lækn­inga á Vogi frá og með næsta mið­viku­degi og fara í fulla með­ferð við áfeng­is­sýk­inni. Ég hætti að drekka fyrir 10 árum og það gekk vel í nokkur ár en í róti síð­ustu ára fór ég að mis­nota það aftur í vax­andi mæli.

Ég geri ekki lítið úr því að hafa farið gegn reglum við útgjöld í starfi, en hafna því alfarið að um fjár­drátt eða ásetn­ings­brot hafi verið að ræða. Það er fjarri lagi. Öll fjár­út­lát voru uppi á borðum, ræki­lega skráð og öll fylgi­skjöl til staðar. Það var því engin til­raun gerð til að leyna einu eða neinu, en vissu­lega hefði ég ekki átt að fara út fyrir þær heim­ildir sem ég hafði. Ég hef beðist afsök­unar á því og ítreka það hér með.

Mér þykir ákaf­lega leitt hvernig þessi mál hafa þró­ast, ekki síst í ljósi sam­komu­lags um starfs­lok, þar sem engar ásak­anir koma fram um neitt mis­jafnt. Það breytir þó ekki hinu, að orsakanna er fyrst og fremst að leita hjá sjálfum mér. Ég vil ráða bót á því og ætla að leita aðstoðar í því skyni, sjálfs mín og fjöl­skyldu vegna,“ Segir Björgvin G. Sig­urðs­son í sam­tali við Herðu­breið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár