Sveinn Andri sakar Sigurð G. um brot á siðareglum lögmanna

Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður Datacell, telur að Sigurður G. Guð­jóns­son, lög­maður Valitor, hafi brotið siða­reglur lög­manna í bréfa­skrifum sínum í tengslum við Wikileaks-málið svo­kall­aða, með því að beina hótun að sér per­sónu­lega. Hann hyggst senda Lög­manna­fé­lagi Íslands form­lega kvörtun vegna fram­komu Sigurðar G. Þetta stað­festir Sveinn Andri í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í frétt sem birt­ist á vef­miðl­inum Vísi í dag er greint frá hótun sem birt­ist í svar­bréfi Sigurðar G., fyrir hönd Valitors, við greiðslu­á­skorun Datacell og Sunshine Press Productions til Valitors, útgef­anda VISA-greiðslu­korta á Íslandi. Fyr­ir­tækin tvö, það er Datacell og Sunshine Press, sáu um að halda utan um styrkt­arfé til handa Wikileaks.

Fyrrverandi skjólstæðingur Sigurðar G. áætlaði tjón


Hæsti­réttur stað­festi í apríl árið 2013 að Valitor hafi verið óheim­ilt að loka fyr­ir­vara­laust greiðslu­gátt fyrir styrki til Wikileaks, og gerði greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu að opna greiðslu­gátt­ina að nýju að við­lögðum dag­sektum.

Fyr­ir­tækin Datacell og Sunshine Press Productions fengu Sigurjón Þ. Árnason, fyrr­ver­andi banka­stjóra Lands­bank­ans og skjól­stæð­ing Sigurðar G. Guð­jóns­sonar, til að áætla tjón sitt vegna lok­unar greiðslu­gátt­ar­innar. Sigurjón áætl­aði að tjónið gæti numið frá einum og upp í átta millj­arða króna.

Nú hafa fyr­ir­tækin tvö kraf­ist þess fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness að Valitor verði tekið til gjald­þrota­skipta vegna ógreiddrar skaða­bóta­kröfu sem hljóðar upp á 10,3 millj­arða króna auk vaxta.

„Blasir við“ að Sigurður braut siðareglur lögmanna


Í áður­nefndri frétt Vísis í dag er sagt frá því að Sveinn Andri, lög­maður Datacell, og Sigurður G. Guð­jóns­son, lög­maður Valitors, hafi átt í bréfa­skrifum áður en krafan um gjald­þrota­skiptin var lögð fram, eftir að greiðslu­á­skorun var send Valitor. Í frétt­inni er vitnað orð­rétt í svar­bréf Sigurðar til Sveins Andra, en þar segir: „Verði af þeirri hótun þinni fyrir hönd umbjóð­enda þinna að leggja fram kröfu um gjald­þrot­skipti á hendur Valitor hf. munt þú per­sónu­lega og for­svars­menn þeirra félaga og félögin sjálf verða gerðir ábyrgir in soli­dum fyrir öllu því tjóni sem Valitor hf. og hlut­hafa félags­ins kunna að verða fyrir vegna þess að krafa um gjald­þrota­skipti er sett fram.“

Í 30. grein siða­reglna lög­manna, sem finna má á vef­síðu Lög­manna­fé­lags Íslands, segir: „Lögmaður má ekki hóta lög­manni gagn­að­ila kæru eða lög­sókn í því skyni að fá hann til að aðhaf­ast eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert í máli gagn­að­ila.“

Í skrif­legu svari Sveins Andra við fyr­ir­spurn Kjarnans, segir hann Sigurð hafa brotið gegn ofan­greindu ákvæði siða­reglna lög­manna með bréfa­skrifum sínum. „Ekki nokkur spurn­ing. Blasir við. Ég mun senda inn kvörtun (til Lög­manna­fé­lags Íslands) í vik­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár