Björgvin notaði debetkort Ásahrepps fjórtán sinnum fyrir sig

Egill Sig­urðs­son, odd­viti Ása­hrepps, kveðst reiður og sorg­mæddur vegna yfir­lýs­ingar Björg­vins G. Sig­urðs­sonar fyrr­ver­andi sveit­ar­stjóra hrepps­ins, þar sem Björgvin vísar á bug öllum ásök­unum um fjár­drátt í störfum sínum fyrir sveit­ar­fé­lagið. Hann segir að Björgvin hafi notað greiðslu­kort sveit­ar­fé­lags­ins í fjöl­mörg skipti í sína eigin þágu.

„Hann lítur ekki á þetta sem fjár­drátt, að hafa tekið fé úr sveita­sjóði hrepps­ins og fært yfir á sinn reikn­ing, og notað debet­kort sveit­ar­fé­lags­ins í fjórtán skipti í eigin þágu þar sem hann keypti meðal ann­ars mynda­vél sem engin hjá sveit­ar­fé­lag­inu hefur séð. Það getur vel verið að menn líti ekki á þetta sem fjár­drátt að mis­fara svona með opin­bert fé, en þetta er sveit­ar­sjóður en ekki einka­fyr­ir­tæki,“ segir odd­viti Ása­hrepps í sam­tali við Kjarnann.

Ljóst er að brott­vikn­ing Björg­vins hefur ekki átt sér langan aðdrag­anda, því hann rit­aði fund­ar­gerð á síð­asta fundi sveit­ar­stjórnar sem hald­inn var 13. jan­úar síð­ast­lið­inn. „Ég fékk vit­neskju um þetta dag­inn eftir, og fór þá ofan í öll gögn. Á fimmtu­dag­inn átti ég svo fund með Björg­vini um morg­un­inn og svo aftur með hrepps­nefnd­inni ásamt Björg­vini seinni­part­inn. Svo á neyð­ar­fundi hjá hrepps­nefnd­inni í kjöl­farið var ákveðið að víkja Björg­vini frá störfum án upp­sagn­ar­frests, sem hann sam­þykkti. Þá var ég líka með lista yfir þau atriði sem hann tók ófrjálsri hendi.“ Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru sveit­ar­stjórn­ar­menn Ása­hrepps slegnir yfir mál­inu, en einn þeirra sagði í sam­tali við Kjarnann: „Það átti engin von á þessu.“

Keypti sér bensín og matvöru með debetkorti sveitarfélagsins


Egill segir að Björgvin hafi dregið sér 400 til 500 þús­und krónur. Auk 250 þús­und króna milli­færsl­unnar hafi Björgvin notað debet­kort sveit­ar­fé­lags­ins til að kaupa sér meðal ann­ars bensín og mat­vöru. „Það getur vel verið að menn geti gert lítið úr upp­hæð­inni og sagt að þetta sé smá yfir­sjón. En mér er alveg sama, ef menn mis­fara með tíu þús­und krónur þá er þeim ekki treystandi fyrir hund­rað þús­und krónum. Ég bara get ekki en verið með annað en stíf og ábyrg prinsipp í tengslum við almannafé,“ segir Egill.

Oddviti Ása­hrepps úti­lokar ekki að málið verði kært til lög­reglu, og á hrein­lega von á að það verði gert. „Ég átti von á því að Björgvin myndi bara end­ur­greiða það sem hann tók, og þannig myndi málið leys­ast. Kannski er bara ein­fald­ast og hrein­leg­ast að kæra þetta bara til lög­reglu, þar sem málið færi til rann­sóknar. Kannski eigum við bara að gera það, en sem betur fer hef ég ekki lent í því áður að menn séu að draga sér fé.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár