Pæling dagsins: Gerum glæpamönnunum ekki greiða

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Fjöldamorðin í París, þar sem sautján ein­stak­lingar létu lífið, hafa dregið dilk á eftir sér og sett kast­ljósið á hryðju­verka­sam­tök og ógn­ina sem af þeim stafar. Aðgerðir víða í Evrópu, meðal ann­ars í Belgíu, sýna enn fremur að stjórn­völd víða og alþjóða­sam­fé­lagið í gegnum starf alþjóða­stofn­ana tekur ógn­ina alvar­lega og bregst við af hörku. Samhliða atburðum sem þessum sprettur jafnan upp umræða um trú­ar­brögð, minni­hluta­hópa og menn­ing­ar­á­rekstra.

Múslimar eru oft and­lag í þess­ari umræðu. Þetta hefur gerst hér á landi að und­an­förnu, alveg eins og víða ann­ars staðar í heim­inum. Það sem mestu skiptir í þess­ari umræðu, að mati bréf­rit­ara, er að ein­angra glæpa­menn­ina og morð­ingj­ana algjör­lega frá umræð­unni um trú­ar­brögðin. Það þarf að gera í allri umræðu, og ættu fjöl­miðlar sér­stak­lega að hafa þetta í huga. Menn­irnir sem skutu blaða­menn Charlie Hebdo voru ekki sendi­boðar trú­ar­bragða eða hug­mynda­fræði, heldur stigu þeir með afger­andi hætti yfir línu rétt­ar­rík­is­ins og gerð­ust sekir um hrika­legan sið­lausan verknað sam­kvæmt okkar gildum og lögum. Þeir voru fjöldamorð­ingjar, studdir áfram af fólki sem heldur úti skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Ekki síst af þessum sökum, þá ættu þing­menn að tala var­lega og færa umræð­una hér á landi, sem á rætur að rekja til hrika­legra glæpa úr í heimi, ekki beint inn á borð trú­ar­bragð­anna. Þar á hún ekki heima. En hinir sið­lausu glæpa­menn, sem halda úti skipu­lagðri glæp­a­starf­semi undir fölsku flaggi trú­ar­bragð­anna, vilja einmitt að umræðan sé færð þangað. Það er algjör óþarfi að gera þeim þann greiða.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár