Sautján fyrirtæki skora á SAF að beita sér fyrir komugjöldum

Sautján fyr­ir­tæki í Samtökum ferða­þjón­ust­unnar (SAF) skora á stjórn sam­tak­anna að hún beiti sér fyrir því að tekin verði upp sér­stök komu­gjöld á Íslandi, til að fjár­magna við­hald og upp­bygg­ingu ferða­manna­staða. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri áskorun sem fyr­ir­tækin sendu stjórn SAF á föstu­dag­inn og Kjarninn hefur undir höndum.

Vilja að SAF beiti sér fyrir vilja félagsmanna


Í áskor­un­inni segir að með því móti myndi stjórn SAF starfa í sam­ræmi við vilja og sann­fær­ingu meiri­hluta félags­manna, sem fram hafi komið í skoð­ana­könnun sam­tak­anna í haust. Kjarninn sagði frá nið­ur­stöðum umræddrar könn­unnar í des­em­ber, en þar var umdeildur nátt­úrupassi settur í sjötta sætið yfir þá val­kosti sem félags­menn SAF vildu að sam­tökin myndu berj­ast fyrir til að standa undir fjár­mögnun á nauð­syn­legu við­haldi og upp­bygg­ingu ferða­manna­staða á Íslandi.

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar vildi yfir­gnæf­andi meiri­hluti félags­manna SAF að sér­stökum komu­gjöldum í þágu nátt­úru­verndar yrði komið á. Því kom það mörgum félags­mönnum innan SAF á óvart þegar stjórn sam­tak­anna ákvað að leggja til að gistin­átta­gjaldið yrði hækkað, sem var fjórði álit­leg­asti val­kost­ur­inn að mati félags­manna SAF sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­inni. Óánægja með ákvörðun stjórn­ar­innar leiddi að minnsta kosti til einnar úrsagnar úr sam­tök­unum og Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að fleiri ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki séu að íhuga að segja skilið við SAF vegna þessa.

Telja að ekki náist sátt um náttúrupassa


Þá segir orð­rétt í áskorun ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna til stjórnar SAF: „Þó að liggi fyrir til­laga iðn­að­ar­ráð­herra (um nátt­úrupassa), þá á hún eftir að fá þing­lega með­ferð og margt í umræð­unni bendir til að um þá til­lögu náist ekki sátt. Því er brýnt að SAF komi með nýtt útspil, sem reikna má með að um náist víð­tæk sátt, bæði meðal félags­manna SAF, félaga­sam­taka sem tengj­ast ferða­þjón­ustu, ann­arra sem við ferða­þjón­ustu starfa og þjóð­ar­innar allrar.“

Ljóst er að tölu­verður þungi er fólg­inn í áskor­un­inni til stjórnar SAF, sér­stak­lega í ljósi þess að nokkur umsvifa­mikil ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki eru á list­anum. Þeirra á meðal eru Center Hotels, GoNorth ehf., Hotel Cabin/Klettur/Örk, Iceland Excursions, Kea-hot­els, Norð­ur­sigl­ing og Viator ehf.

[caption id="attachment_17355" align="aligncenter" width="640"] Ferða­menn slaka á í nátt­úru Íslands.[/caption]

Röngum upplýsingum haldið á lofti


Pétur Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Viator, segir, í sam­tali við Kjarnann, að SAF séu komin aftur á byrj­un­ar­reit eftir að Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, ráð­herra ferða­mála, hafn­aði mála­miðl­un­ar­til­lögu stjórnar sam­tak­anna um hærra gistin­átta­gjald. „Það er nauð­syn­legt að næstu skref verði tekin í sam­ræmi við vilja félags­manna. Það er óskilj­an­legt að komu­gjalds­leið­inni hafi verið ýtt út af borð­inu án nokkurar skoð­unar og þar hafi bein­línis röngum upp­lýs­ingum, um að sú leið væri ólög­leg, verið haldið á lofti. Gögn sem sanna hið gagn­stæða hafa ekki verið lögð fram og þar af leið­andi ekki fengið neina umfjöllun.“

Helstu rök ráð­herra ferða­mála og SAF gegn komu­gjöldum hafa verið að þau brjóti í bága við alþjóða­samn­inga á borð við EES-samn­ing­inn og Schengen. Samkvæmt lög­fræði­á­liti frá lög­manns­stof­unni LEX, sem unnið var fyrir SAF, eru komu­gjöld hins vegar raun­hæfur kostur. Kjarninn sagði frá lög­fræði­á­lit­inu sem unnið var fyrir SAF í des­em­ber. Nið­ur­staða lög­fræði­á­lits­ins á svo sem ekki að koma á óvart, þar sem komu­gjöld lifa góðu lífi víða í Evrópu, eins og Kjarninn hefur greint frá.

Hætta á að SAF klofni eða liðist í sundur


Fram­kvæmda­stjóri Viator er þeirrar skoð­unar að komu­gjalds­leiðin sé ein­faldasta, ódýrasta og skil­virkasta leiðin til að afla tekna til handa nátt­úru­verndar. „Hún er mjög vel fær, krefst lít­ils und­ir­bún­ings, er full­kom­lega lög­leg og brýtur engar alþjóð­legar skuld­bind­ingar, þvert ofan í það sem haldið hefur verið fram. Með þess­ari áskorun erum við að minna stjórn SAF á að standa vörð um hags­muni félags­manna, geri hún það ekki er hætta á að hún missi traust sinna eigin félaga og sam­tökin klofni eða lið­ist í sundur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár