Pæling dagsins: Gjaldþrota í órétti að rukka - hvað næst?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Eins og þegar er orðið ljóst er nátt­úrupass­inn svo­nefndi mikið vand­ræða­mál fyrir rík­is­stjórn­ina og Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur ráð­herra. Hún á mikið verk fyrir höndum við að afla þessu máli stuðn­ings, en eins og fram hefur komið er það óvíða óvinn­sælla en einmitt innan ferða­þjón­ust­unnar. Það virð­ist bara vera Icelandair Group sem styður nátt­úrupassa­leið­ina en fáir aðrir innan geirans. For­vitni­legt verður að fylgj­ast með gjald­töku í fer­þjón­ust­unni í Náma­skarði í sumar. Þar kom upp kostu­legt atriði í fyrra. Þá hófu ein­stak­lingar að inn­heimta gjald af ferða­mönnum við hveri austan Náma­skarðs í Mývatns­sveit. Þessir ein­stak­lingar voru í órétti, og var lög­bann á þennan glóru­lausa verknað stað­fest 17. júlí í fyrra. Á þessu svæði skar­ast einka­rétt­ar­legt eign­ar­hald og opin­bert eign­ar­hald - og opin­bert umráða­svæði - á landi. Af þeim sökum var ótrú­legt að þessum ein­stak­lingum hafi dottið það í hug að þeir gætu hafið gjald­töku og talið sig vera í rétti til þess, án póli­tískrar stefnu­mörk­unar, sam­stöðu meðal land­eig­enda allra og skýrrar leið­sagnar í lögum. Fyrir ein­stak­ling­unum fór Ólafur H. Jónsson, sem kall­aði sig tals­mann land­eig­enda, í við­tölum við fjöl­miðla. Svo óheppi­lega vildi til í fyrra­sumar, að í þann mund sem þessi ólög­lega gjald­taka var að hefj­ast við hver­ina, þá var Ólafur úrskurð­aður gjald­þrota end­an­lega eftir dóm Hæsta­réttar þar um. Óhætt er að segja að þetta hafi ekki farið vel saman við boð­skap land­eig­enda, sem höfðu þá grund­vall­ar­rök­semd út á við, að með gjald­tök­unni ætti að horfa til langrar fram­tíðar, fara vel með fé og byggja upp svæðið. Það verður for­vitni­legt að sjá hvernig þessi mál öll koma undan vetri...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár