Karolina Fund: Stundin - fjáröflun fyrir fjölmiðil

Það hefur heldur betur staðið styr í kring um DV und­an­farið. Blaðið var nýlega yfir­tekið og blaða­mönnum og rit­stjórum sagt upp. Nú hafa fyrrum rit­stjóri DV og starfs­menn hafið söfnun á Karolina Fund til þess að fjár­magna nýjan fjöl­miðil. Verk­efnið fór afar vel af stað og náði tak­marki sínu á ein­ungis 48 klukku­stundum og þegar þetta er skrifað eru þau hárs­breidd frá því að slá met á hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unni, með hæstu upp­hæð sem safn­ast hefur.

Við tókum Jón Trausta Reyn­is­son, rit­stjóra og fram­kvæmda­stjóra Stund­ar­innar tali.

http://youtu.be/KYJnlVxjYA8

Persónuleg og samfélagsleg staða


Getur þú sagt okkur frá aðdrag­anda þess að þið ákváðuð að stofna Stundina?

„Þegar DV var yfir­tekið með til­stuðlan hags­muna­að­ila stóðum við frammi fyrir tvenns konar stöðu, per­sónu­legri og sam­fé­lags­legri. Per­sónu­lega staðan var sú að við sem starfs­menn DV þurftum að ákveða hvort við vildum vinna með þessum aðilum að því að móta mið­il­inn eftir þeirra vilja. Þá þegar lá fyrir að for­send­urnar fyrir yfir­tök­unni voru and­stæðar okkar hug­myndum um frjálsan og óháðan fjöl­miðil. Innan nokk­urra daga í kjöl­far yfir­tök­unnar voru sum okkar hætt en önnur rekin.

Sam­fé­lags­lega staðan var sú að þrír stærstu vef­miðlar lands­ins og stærstu dag­blöð lands­ins voru komnir undir stjórn hags­muna­að­ila. Í einu fjöl­miðla­fé­lag­inu var fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, seðla­banka­stjóri og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks yfir rit­stjórn­inni. Hjá öðru var búið að setja fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúa Baugs og sér­stakan and­stæð­ing rann­sókna á efna­hags­hrun­inu yfir rit­stjórn­ina. Og DV var yfir­tekið af hópi sem sam­an­stóð af manni sem vildi hefna fyrir umfjöllun um við­skipti sín, lög­fræð­ingi sem var að reka meið­yrða­mál gegn rit­stjórn­inni og að lokum fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins sem átti sögu kross­tengsla milli fjöl­miðl­unar og við­skipta­hags­muna, og gerði yfir­lýstan „spuna­meist­ara“ sinn að rit­stjóra."

Hver er til­gangur mið­ils­ins? Hvaða hlut­verki mun hann þjóna í sam­fé­lag­inu?

„Til­gangur okkar með því að stofna Stundina er að bjóða upp á nýjan val­kost í upp­lýs­inga­gjöf, fjöl­miðil sem er ekki tengdur valda­blokkum og setur sér meðal ann­ars reglur sem tryggja vald­dreif­ingu með dreifðu eign­ar­haldi. Önnur leið til að hámarka virkni fjöl­mið­ils­ins í þágu almenn­ings er að hann sé sem mest fjár­magn­aður af almenn­ingi, bæði með kaupum fólks á áskriftum og hlutafé. Fjöl­mið­ill sem er fjár­magn­aður af almenn­ingi fremur en sér­hags­muna­öflum er í mun betri aðstöðu til að stunda rann­sókn­ar­blaða­mennsku. Það hefur sýnt sig að rann­sókn­ar­blaða­mennska er nauð­syn­leg í lýð­ræð­is­ríki, en að hún er jafn­framt óvin­sæl hjá ýmsum sem hafa hag af því að almenn­ingur fái tak­mark­aðar upp­lýs­ingar."

Vonandi eitt skref af mörgum til að gera fjölmiðla óháða


Fjár­öfl­unin gekk ótrú­lega vel. Þið náðuð tak­mark­inu ykkar á nákvæm­lega 48 klukku­stundum. Ertu með til­gátu um af hverju verk­efnið ykkar fékk svona góðar und­ir­tektir?

„Við­brögðin sýna að margir deila með okkur þeirri sam­fé­lags­legu sýn að það skipti máli fyrir far­sæld okkar allra að til séu sterkir fjöl­miðlar sem eru ekki undir valdi sér­hags­muna­afla. Bæði fyrir og eftir hrun hefur sýnt sig að eign­ar­hald og vald yfir fjöl­miðlum hefur áhrif á þær upp­lýs­ingar sem við fáum. Vonandi er okkar fram­lag bara eitt skref af mörgum í þá átt að gera fjöl­miðla óháð­ari valda­blokkum og fólk almennt með­vit­að­ara um að það getur haft áhrif til að auka upp­lýs­inga­gjöf. Vonandi er þetta skref í átt að vald­efl­ingu almenn­ings. Upp­lýs­ingar eru grunn­ur­inn að upp­lýstri ákvarð­ana­töku okkar allra, og við vitum ýmist aldrei eða of seint af því þegar mik­il­vægum upp­lýs­ingum hefur verið haldið frá okkur."

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár