Pæling dagsins: Það er ekki nóg að funda Ásmundur!

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Jæja, Ásmundur Frið­riks­son er búinn að eiga fund með Ólafi Hall­dórs­syni og Sverri Agn­ars­syni, for­manni félags múslima á Íslandi. Sverrir hefur verið góður tals­maður múslima hér á landi og verið mál­efna­legur þegar hann tjáir sig um ýmis­legt sem snýr að múslimum. Það er mik­il­vægt á þeim tímum sem við lifum núna. Ásmundur seg­ist hafa átt hrein­skiptið sam­tal við þá félaga, og þeir séu sam­mála honum um að mik­il­vægi þess að vera með öruggt sam­fé­lag hér á landi. Ekki liggur fyrir ennþá hvort Ásmundur hefur beðist afsök­unar á glóru­lausum ummælum sínum fyrr í vik­unni, sem ungir Sjálf­stæð­is­menn höfn­uðu strax og for­maður flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, sömu­leiðis. Ásmundur þyrfti að gera hreint fyrir sínum dyrum. Það er ekki nóg að funda með múslimum, þó vafa­lítið hafi þeir félagar Ólafur og Sverrir komið sínum skila­boðum skýrt og skil­merki­lega til skila...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár