Sjö eftirminnilegustu stórmót íslenska handboltalandsliðsins

Íslensk þjóð mun taka hand­bolta­sótt síðar í dag þegar hand­boltalands­liðið hefur leik á enn einu stór­mót­inu. Árum saman hefur svita­böðuð hóp­glíman lyft íslensku sam­fé­lagi uppúr skamm­deg­inu og dæg­ur­þras­inu í jan­úar og þjappað því saman á bak­við liðið, sem aldrei er kallað neitt annað en „strák­arnir okkar“.

Kjarninn rifjar af þessu til­efni upp nokkrar eft­ir­minni­legar loka­keppnir og ólymp­íu­leika sem hand­boltalands­liðið hefur tekið þátt í. Keppnir sem annað hvort skildu eftir jákvæðar minn­ingar eða súrt bragð í munni.

Ólympíuleikarnir í Los Angeles 1984


Íslenska lands­liðið komst fyrst á Ólymp­íu­leika árið 1972, þegar þeir voru haldnir í München í Þýska­landi. Næst komst liðið, nokkuð óvænt, inn á leik­anna í Los Angeles 1984. Ástæðan var sú að Sov­ét­ríkin og nokkrar aðrar Austur-Evr­ópu­þjóðir drógu lið sín til baka. Þar náði það sjötta sæti, sem var langt yfir vænt­ingum.

[caption id="attachment_17157" align="alignnone" width="803"] Umfjöllun úr Morg­un­blað­inu um frammi­stöðu liðs­ins í Los Angeles.[/caption]

 

Olympíuleikarnir í Seoul 1988


Liðið komst á aðra Ólymp­iu­leika sína í röð. Stefnt var á verð­launa­sæti en það gekk ekki eftir. Liðið hans Bogdans Kowalczyk olli miklum von­brigðum og end­aði í átt­unda sæti. Fyrir vikið þurfti liðið að fara í B-keppn­ina í Frakk­landi nokkrum mán­uðum síðar til að vinna sér inn sæti á HM 1990 í Tékk­landi.

[caption id="attachment_17158" align="alignnone" width="965"] Umfjöllun úr Morg­un­blað­inu um hand­boltalands­liðið sem lék í Seoul 1988.[/caption]

B-keppnin 1989


Þrátt fyrir von­brigðin í Seoul átti Ísland frá­bært hand­boltalið á níunda ára­tugnum án þess að það skil­aði neinum verð­launum á alþjóða­vett­vangi. Þ.e. þangað til að það kom að B-keppni heims­meist­ara­móts­ins í Frakk­landi árið 1989. Þá small allt og liðið vann Pólverja í úrslitum. Og hlaut sín fyrstu alþjóð­legu verð­laun.

[caption id="attachment_17160" align="alignnone" width="740"] Ísland vann B-keppn­ina í Frakk­landi 1989. Svona leit for­síða íþrótta­blaðs Morg­un­blaðs­ins tveimur dögum síðar.[/caption]

Ólympíuleikarnir í Barcelona 1992


Í þriðja skiptið í röð komst hand­boltalands­liðið á Ólymp­íu­leika. Þremur dögum fyrir setn­ingu leik­anna var til­kynnt að Júgóslavíu yrði meinuð þátt­taka og Íslend­ingum boðið að hlaupa í skarðið. Vænt­ingar voru því ekki miklar. Liðið stóð sig hins vegar vonum framar, náði í und­an­úr­slit og end­aði í fjórða sæti eftir tap gegn Frökkum í brons­leiknum. Þetta var, á þeim tíma, besti árangur íslenska liðs­ins á stór­móti í hand­bolta.

[caption id="attachment_17162" align="alignnone" width="1032"] Ísland tap­aði fyrir Sam­veld­inu í und­an­úr­slitum og mætti Frökkum í leik um þriðja sætið.[/caption]

Evrópumótið árið 2002


Nokkrir af bestu hand­bolta­mönnum Íslands­sög­unnar voru farnir að draga vagn­inn í lands­lið­inu á þessu móti. Guðjón Valur Sig­urðs­son var í vinstra horn­inu, Dagur Sig­urðs­son á miðj­unni og Ólafur Stef­áns­son í hægri skytt­unni. Ísland vann bæði undan- og milli­riðil sinn áður en liðið tap­aði fyrir Svíum í und­an­úr­slitum. Strák­arnir mættu svo Dönum í leik um þriðja sætið sem tap­að­ist líka. Fjórða sætið því stað­reynd. Eft­ir­minni­leg­asti leik­ur­inn úr þess­ari keppni var samt örugg­lega jafn­tefl­is­leikur við hið firna­sterka lið Frakka, sem lauk 26-26.

https://www.youtube.com/watch?v=zsC9SYJke7I

 

Silfur á Olýmpíleikum í Pekíng 2008


Íslenska mik­il­mennsku­brjál­æðið sem tröll­reið öllu á árunum fyrir hrun taldi sig hafa fengið stað­fest­ingu á genat­ískum yfir­burðum okkar sem yfir­burð­ar­þjóð þegar „stórasta land í heimi“ komst í úrslita­leik­inn á Ólymp­íu­leik­unum í Pekíng 2008, rétt rúmum mán­uði áður en íslenska efna­hags­kerfið lagð­ist á hlið­ina. Liðið spil­aði stór­kost­lega, Ólafur Stef­áns­son gaf stór­kost­leg við­töl og besta hand­boltalið sem Ísland hefur átt upp­skar loks verð­laun á stór­móti. Tekið var á móti silf­ur­hetj­unum eins og bylt­ing­ar­leið­togum, fálka­orðan hengd í alla sem komu nálægt lið­inu utan nudd­ar­ans og stjórn­mála­menn duttu nán­ast um hvern annan þegar þeir voru að reyna að eigna sér hlut í „strák­unum okkar“. Ógleym­an­legt, á svo margan hátt.

https://www.youtube.com/watch?v=YzzzazinUJg

Brons á EM í Austurríki 2010


Tveimur árum eftir silfur­æv­in­týrið var stemn­ingi í íslensku sam­fé­lagi aðeins önnur en í ágúst 2008. Efna­hags­hrun og afleið­ingar þess gerðu það að verkum að þjóðin þurfti lyfti­stöng. Hand­boltalands­liðið sá um hana. Mótið fór fram í Aust­ur­ríki og enn komust Íslend­ingar í und­an­úr­slit, þar sem firna­sterkir Frakkar flengdu liðið 36-28. Í leiknum um þriðja sætið var hins hins vegar allt annað upp á ten­ingnum og þriggja marka sigur á Pól­verjum tryggði verð­skuldað brons.

https://www.youtube.com/watch?v=Q2xl4hreMsM

Til að hita upp fyrir leik­inn á eftir er ekki úr vegi að rifja upp...

https://www.youtube.com/watch?v=UnSQS1XqCjg

Áfram Ísland!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár