Formaður Flokks heimilanna stefnir Pétri Gunnlaugs hjá Útvarpi Sögu fyrir meiðyrði

Kristján Snorri Ing­ólfs­son, for­maður Flokks heim­il­anna, hefur stefnt Pétri Gunn­laugs­syni, útvarps­manni á Útvarpi Sögu, fyrir meið­yrði. Kristján Snorri krefst þess að ummæli, sem Pétur lét falla í stefnu máls­ins undir höndum.

[caption id="attachment_17161" align="aligncenter" width="622"] Umrædd ummæli Péturs Gunn­laugs­sonar, sem Kristján Snorri Ing­ólfs­son for­maður Flokks heim­il­anna vill að verði dæmd dauð og ómerk.[/caption]

Illdeilur sem hófust með ólögmætri stjórnarbreytingu


Eins og kunn­ugt er var Pétur Gunn­laugs­son í for­svari fyrir Flokk heim­il­anna í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum. Flokkur heim­il­anna hét áður Lýð­veld­is­flokk­ur­inn, sem stofn­aður var árið 2010. Í til­kynn­ingu um stofnun flokks­ins til fyr­ir­tækja­skrár, var Kristján Snorri skráður for­maður, en á árinu 2013 var sam­þykkt að flokk­ur­inn myndi bjóða sig fram til Alþing­is­kosn­inga. Með til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár í mars árið 2013 var nafni flokks­ins breytt í Flokk heim­il­anna. Í júní sama ár barst fyr­ir­tækja­skrá svo til­kynn­ing um að ný stjórn hefði verið kosin hjá flokknum, en þá var Pétur Gunn­laugs­son skráður for­maður Flokks heim­il­anna.

Stjórn­ar­maður í flokknum, bróðir Krist­jáns Snorra Ing­ólfs­sonar, mót­mælti breyt­ing­unni á stjórn flokks­ins í júlí árið 2013, en með ákvörðun fyr­ir­tækja­skrár var talið að breyt­ingin hafi verið lög­mæt. Kristján Snorri og fleiri stjórn­ar­menn skutu þá ákvörðun fyr­ir­tækja­skrár til þáver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neytis sem felldi svo úr gildi ákvörðun fyr­ir­tækja­skrár þann 5. maí síð­ast­lið­inn, þar sem breyt­ingin á stjórn Flokks heim­il­anna hafi hvorki verið í sam­ræmi við sam­þykktir flokks­ins né meg­in­reglur félaga­réttar. Áður­nefnd frétt á Eyjunni, þar sem Pétur lét ummælin falla sem honum hefur nú verið stefnt fyrir, fjall­aði að miklu leyti um úrskurð ráðu­neyt­is­ins.

Sakaði formann Flokks heimilanna um þjófnað


Flokkur heim­il­anna fékk nokk­urt fylgi í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum, um 5.700 atkvæði, eða um þrjú pró­sent atkvæða. Þar sem fram­boðið náði 2,5 pró­senta lág­mark­inu átti það í kjöl­far kosn­ing­anna rétt á úthlutun úr rík­is­sjóði. Í áður­nefndi frétt Eyjunnar sak­aði einmitt Pétur Gunn­laugs­son Kristján Snorra Ing­ólfs­son um að stinga umræddri úthlutun í sína eigin vasa. Samkvæmt frétt Eyjunnar frá 4. júlí síð­ast­liðnum er um 40 millj­ónir króna að ræða, í fjórum hlutum.

Í stefnu máls­ins segir Kristján Snorri að ummæli Péturs hafi verið æru­meið­andi og vegið að mann­orði hans, enda hafi hann verið sak­aður um fjár­drátt og umboðs­svik með þeim. Þá kemur fram í stefn­unni að Pétri hafi verið birt bréf frá lög­manni Krist­jáns Snorra í októ­ber þar sem þess var kraf­ist að Pétur drægi ummæli sín til baka og bæð­ist afsök­unar á sama vett­vangi og ummæli hans birt­ust, og að hann greiddi eina milljón króna í miska­bætur til Krist­jáns Snorra. Samkvæmt stefnu máls­ins svar­aði Pétur aldrei bréf­inu.

Pétur Gunn­laugs­son heldur sjálfur upp vörnum í mál­inu, en hann lagði fram ítar­lega grein­ar­gerð fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 8. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hann hafnar með öllu ásök­unum sem á hann eru bornar í mál­inu og krefst þess að hann verði sýkn­aður af öllum kröfum stefn­anda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár