Formaður Framsýnar líkir seðlabankastjóra við bjarndýr í híði

Aðal­steinn Árni Bald­urs­son, for­maður Fram­sýnar-stétt­ar­fé­lags, gagn­rýnir Má Guð­munds­son seðla­banka­stjóra harð­lega fyrir afstöðu hans til kom­andi kjara­við­ræðna, í við­tali við hér­aðs­frétta­blaðið Skarp á Húsavík sem kom út í gær.

Seðla­banka­stjóri hefur sagt að mik­il­vægt sé að kom­andi kjara­samn­ingar feli ekki í sér óhóf­legar launa­hækk­anir, og ekki sé raun­hæft að laun hækki um meira en 3,5 pró­sent á ári. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa tekið í svip­aðan streng og sagt að svig­rúm til launa­hækk­anna á þessu ári sé ekki meira en þrjú til fjögur pró­sent.

Millistjórnendur og stjórnendur stjórna launaskriðinu


„Þetta er bara gömul tugga. Seðla­banka­stjór­inn virð­ist vera eins og björn­inn, hann heldur sér vak­andi þegar verka­lýðs­hreyf­ingin er að móta sína kröfu­gerð fyrir lág­launa­fólkið í land­inu. Þess á milli skríður banka­stjór­inn í híði sitt og sefur vært, svo sem þegar kenn­arar, flug­menn og læknar hafa verið að semja um sín kjör. Stað­reyndin er sú að milli­stjórn­endur og stjórn­endur hafa hækkað gríð­ar­lega í launum og stjórna í raun og veru launa­skrið­inu,“ segir for­maður Fram­sýnar í við­tali við Skarp. Hann segir að von sé á kröfu­gerð Starfs­greina­sam­bands Íslands líti dags­ins ljós í lok mán­að­ar­ins.

Samtök atvinnu­lífs­ins fá líka sinn skerf af gagn­rýni for­manns Fram­sýnar. „Stjórn­ar­for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins er jafn­framt for­stjóri Icelandair Group. Þessi ágæti maður talar núna um nauð­syn þess að semja um „hóf­legar“ kjara­bætur. Hann samdi nýverið við flug­menn um miklar launa­hækk­anir í reyk­fylltu bak­her­bergi. Ég skora á for­stjór­ann að birta þá samn­inga, þannig að almenn­ingur geti áttað sig á raun­veru­leik­anum.“

Þá segir Aðal­steinn Árni að ekki komi til greina að semja um pró­sentu­hækk­anir, kraf­ist verði krónu­tölu­hækk­anna í kom­andi kjara­við­ræðum. „Pró­sentu­hækk­anir koma þeim hæst laun­uðu helst til góða, sá sem er með milljón á mán­uði fær miklu meira í vas­ann, en sá sem er með 300 þús­und krónur. Ég er harður á því að samið verði um krónu­tölu­hækkun, en ekki pró­sentu­hækkun. Ég vona að Starfs­greina­sam­bandið standi fast á þess­ari kröfu.“

Hagnaður skili sér líka til starfsmanna


Formaður Fram­sýnar segir svig­rúm til umtals­verðra launa­hækk­anna til staðar þrátt fyrir varn­að­ar­orð seðla­banka­stjóra og Samtaka atvinnu­lífs­ins.

„Stór hluti sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja er að skila miklum hagn­aði, þannig að þar á bæ er klár­lega gott svig­rúm til að hækka launin veru­lega. Ferða­þjón­ustan hefur vaxið gríð­ar­lega og veltan sömu­leiðis. Stóru fyr­ir­tækin skila eig­endum sínum mynd­ar­legum hagn­aði og him­inhá laun sumra stjórn­enda hafa vakið athygli, svo ekki sé talað um ríf­legar arð­greiðslur til hlut­hafa. Verslun og þjón­usta virð­ist sömu­leiðis vera á ágætum gír, sem og stór­iðjan. Á þetta komum við til með að benda í kom­andi kjara­við­ræðum, töl­urnar tala sínu máli og almennt starfs­fólk þess­ara fyr­ir­tækja á að njóta góðs af vel­gengn­inni.“

„Munum aldrei skrifa upp á 3-4 prósenta launahækkun“


Aðal­steinn Árni á von á hörðum vetri framundan í kjara­bar­átt­unni. „Það er hafður vetur framundan og ég bið almennt launa­fólk um að búa sig undir átök. Við getum ekki enn eina ferð­ina setið eftir í launa­málum og horft nán­ast á allar aðrar stéttir hækka miklu meira.“

Aðspurður um hvers konar aðgerðir launa­fólks séu í far­vatn­inu, svar­aði Aðal­steinn Árni í sam­tali við blaða­mann Skarps: „Það er hægt að fara ýmsar leiðir, ég er ekk­ert endi­lega að tala um alls­herj­ar­verk­fall. Verka­lýðs­hreyf­ingin getur vel sýnt klærnar með áber­andi og afger­andi hætti, ef henni er mis­boðið. Auðvitað vona ég að ekki þurfi að grípa til ein­hverra aðgerða, en eins og landið liggur núna stefnir aug­ljós­lega í harðar kjara­við­ræður. Við munum aldrei skrifa upp á þriggja til fjög­urra pró­senta launa­hækkun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár